Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar 27. júlí 2026 10:02 Svargrein við pistli í Morgunblaðinu 22. júlí 2026 Þegar ESB-aðild er rædd á Íslandi er Finnland uppáhaldshryllingssagan. Landið gekk í ESB árið 1995, tók upp evru, og glímir nú við yfir 10% atvinnuleysi. Sjáið? segja nei-menn. Þetta bíður okkar. En enginn spyr Finnana sjálfa. Hvað segja Finnar? Eurobarometer kannaði þetta í mars og apríl 2026, þegar atvinnuleysið var þegar yfir 10%. Niðurstöðurnar: 79% Finna segja að ESB veiti skjól í órólegum heimi. 83% eru sátt við lífskjör sín. 76% segja að Finnland hafi hagnaðst á ESB-aðild. Þetta er ekki frá 2015 þegar allt gekk vel. Þetta er núna, í miðri kreppu. Samt er ánægjan á ESB svona mikil. Af hverju er efnahagur Finna slæmur? Þrjú atriði sem ekkert hafa með ESB að gera: Í fyrsta lagi Rússland. Finnland átti 13 milljarða evra í viðskiptum yfir 1.340 km löng landamæri við Rússa. Þau hrundu eftir innrásina í Úkraínu. Heil 4% af vergri landsframleiðslu hvarf á einu ári. Í öðru lagi Nokia. Finnland var of háð einni atvinnugrein. Hnignun Nokia frá 2012 skildi eftir gat sem enn hefur ekki verið fyllt. Í þriðja lagi öldrun. Finnland er meðal elstu þjóða Evrópu. Færri vinna, fleiri þurfa þjónustu. S&P lækkaði horfur Finnlands í apríl 2026 og nefndi ríkisfjármál og varnarmálaútgjöld. Ekki ESB. Ekki evru. Hvað segja finnskir bændur? Í Bændablaðinu 9. júlí sl. segir framkvæmdastjóri finnsku landbúnaðarsamtakanna: „Mjög fáir bændur myndu vilja yfirgefa sambandið. Enginn betri kostur er í boði. Þess í stað reynum við að gera ESB betra.“ Ef bændur, sá hópur sem mest hefur tapað á núverandi ástandi, vilja ekki út, þá er kannski ástæða til að hlusta. Spurningin sem nei-sinnar þurfa að svara Ef ESB-aðild er orsök vandans, hvers vegna vilja 76% Finna halda henni? Og hvers vegna er engin umræða um úrsögn, jafnvel meðal þeirra sem glíma við atvinnuleysi? Svarið er einfalt: Finnarnir vita muninn á ESB og Rússalandi. Og þeir er ekki á leiðinni út. Höfundur er sérfræðingur í samstarfi og smíðaði verdbolga.net, opið mælaborð sem flokkar hvern lið verðbólgunnar eftir uppruna: ríki, erlendu eða innlendu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar