Lærisveinar Tinnu rétt misstu af úrslitum Andri Broddason skrifar 25. júlí 2026 13:46 Tinna H. Ludvigsen er búin að standa sig vel sem þjálfari Thom Gicquell og Delphine Delrue hjá franska landsliðinu í badminton. Thommyfox/Jeppe Ludvigsen Thom Gicquel og Delphine Delrue, lærisveinar Tinnu H. Ludvigsen, rétt misstu af úrslitaleik Opna kínverska mótsins í badminton. Tvenndarleiksparið rétt tapaði fyrir kínversku pari sem er efst á styrkleikalista Alþjóðabadmintonsambandsins.
Íslendingurinn Tinna H. Ludvigsen starfar sem tvíliða- og tvenndarleiksþjálfari franska landsliðsins í badminton. Frakkland er að verða rísandi stórþjóð í badminton eftir að hafa sett mikið fjármagn í afreksíþróttastarf fyrir Ólympíuleikana í París árið 2024. Opna kínverska mótið er eitt af fjórum Super 1000 mótum í badminton sem mætti kalla risamótin. Þar kepptu Thom Giquel og Delphine Delrue í tvenndarleik undir leiðsögn Tinnu. Tvenndarleiksparið er númer sex á styrkleikalista Alþjóðabadmintonsambandsins og er parið því í góðri stöðu á heimslistanum. Í 8-liða úrslitum í gær unnu Gicquel og Delrue besta danska tvenndarleiksparið, Mathias Christiansen og Alexöndru Bøje, í æsispennandi leik. Danska parið er númer þrjú á styrkleikalistanum og því mikil vonbrigði fyrir Danina að detta úr leik. Í dag mættu Gicquel og Delrue þeim Yan Zhe Feng og Dong Ping Huang frá Kína en það par er efst á styrkleikalista Alþjóðabadmintonsambandsins. Við tók hörkuleikur og var fyrri lotan gríðarlega jöfn en endaði með sigri kínverska parsins 21-19. Í seinni lotunni var erfiðara fyrir franska parið að halda í við það kínverska og endaði seinni lotan 21-14. Í úrslitum mæta Feng og Huang öðru kínversku pari og má búast við hörkuleik í úrslitunum en sá leikur fer fram á morgun.
Badminton Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira