Golf

Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið

Andri Broddason skrifar
Þóra Sigríður bætti vallarmet GKG og blandaði sér í toppbaráttu Lexusbikarsins.
Þóra Sigríður bætti vallarmet GKG og blandaði sér í toppbaráttu Lexusbikarsins. Instagram: Thora_2007

Þóra Sigríður Sveinsdóttir setti nýtt vallarmet á Leirdalsvelli á öðrum keppnisdegi Lexus-bikars GKG sem fer þar fram um helgina. Hún bætti vallarmetið um tvö högg.

Lexus bikar GKG fer fram á Leiruvelli um helgina og var nóg um að vera hjá bestu kylfingum landsins í gær. Karen Lind Stefánsdóttir sem spilar fyrir heimaklúbbinn GKG er efst í kvennaflokki en stjarna gærdagsins er Þóra Sigríður Sveinsdóttir sem bætti vallarmetið af kvennateigum.

Tveir kylfingar höfðu áður farið Leirdalsvöllinn á 70 höggum en Þóra Sigríður fór hringinn í gær á 68 höggum eða þrem höggum undir pari og bætti því vallarmetið um tvö högg. Hringur gærdagsins kom henni í annað sæti mótsins ásamt Fjólu Margréti Viðarsdóttur og eru þær báðar á sjö höggum yfir pari. Karen Lind er með gott forskot í efsta sætinu en hún er á þremur höggum yfir pari og með fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn sem fer fram í dag.

Í karlaflokki er Sigurður Bjarki Blumenstein kominn í efsta sætið og lék hring gærdagsins frábærlega á 64 höggum eða sjö höggum undir pari vallarins. Daníel Ísak Steinarsson er aðeins höggi á eftir honum í öðru sæti.

Það dróg til tíðinda hjá Böðvari Braga Pálssyni en hann fór holu í höggi á níundu holu Leirdalsvallar. Þetta var mikilvægt högg og kom honum í fimmta sæti mótsins á þremur höggum undir pari. Hann er því kominn í fína stöðu fyrir lokahring dagsins í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×