Viðskipti erlent

TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress

Samúel Karl Ólason skrifar
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sakar TikTok um að gera ekki nóg til að verja börn og ungmenni
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sakar TikTok um að gera ekki nóg til að verja börn og ungmenni Getty/Jonathan Raa, NurPhoto

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sakað eigendur miðilsins TikTok um að brjóta gegn lögum ríkjasambandsins um stafræna þjónustu. Ásakanirnar snúa sérstaklega að því að börn séu berskjölduð gagnvart níðingum og einelti á TikTok en málið gæti endað með því að eigendur ByteDance þurfi að borga stærðarinnar sekt.

Umrædd lög kallast á ensku „The Digital Services Act“ og fjalla að miklu leyti um samfélagsmiðla og eftirlit og ritstjórn á þeim.

Fyrsta tæknifyrirtækið sem var sektað á grunni umræddra laga var X (áður Twitter). Það var sektað um 120 milljónir evra í desember í fyrra.

Sjá einnig: ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða

Ásakanirnar gegn TikTok fela í sér að fyrirtækið geri ekki nóg til að vernda börn á miðlinum, einkalíf þeirra og persónuupplýsingar. Þá geti börn gert síður sínar á TikTok opinberar, svo allir geti séð efni þeirra, sem megi ekki samkvæmt DSA. Framkvæmdastjórnin segir einnig að of auðvelt sé að finna börn á TikTok.

CNBC News hefur eftir forsvarsmönnum TikTok að farið verði yfir niðurstöður framkvæmdastjórnarinnar og að framhaldið verði ákveðið í samráði við Evrópusambandið.

Í tveimur fyrri málum hefur ByteDance orðið við kröfum framkvæmdastjórnarinnar og er svo eitt mál til viðbótar yfirstandandi.

Google fékk himinháa sekt

Í gær sektaði framkvæmdastjórnin Google um 890 milljónir evra, eða um tæplega 128 milljarða króna, á grunni annarra sambærilegra laga sem kallast „The Digital Markets Act“. Þau lög snúa að samkeppni á internetinu.

Framkvæmdastjórnin sakar Google um að beita yfirburðastöðu sinni á sviði leitar á internetinu til að ota eigin tota. Það er að segja, til að kynna eigin vörur og þjónustu frekar en aðra sem gæti verið betri og ódýrari fyrir notendur.

Það sé eitthvað sem DMA-lögin banni.

Fyrirtækið er sakað um að beita sambærilegum aðferðum hvað varðar forrit í snjalltækjum sem keyra á Android-stýrikerfi Google.

Greiði Google ekki sektina innan sextíu daga gæti hún hækkað verulega og gæti fyrirtækinu verið gert að greiða sektir sem hljóða upp á allt að fimm prósent af veltu þess.

Sektuðu einnig AliExpress

Á mánudaginn síðastliðinn sektaði framkvæmdastjórnin AliExpress um 550 milljónir evra, eða um 79 milljarða króna, fyrir að brjóta gegn DSA-lögunum. Sú sekt byggir á því að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi ekki varið notendur gegn sölu ólöglegra, hættulegra eða svikavara á netmarkaðstorgi þess.

Áðurnefndir forsvarsmenn eru sagðir ekki hafa tryggt að þeir hefðu nægjanlega margt starfsfólk til að greina og stöðva sölu ólöglegs varnings. Þá hafi ekki verið gengið úr skugga um að slíkum varningi væri ekki otað að notendum gegnum auglýsingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×