Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar 23. júlí 2026 11:32 Hið þvælda hugtak „gróðaverðbólga“ hefur nú verið dregið upp úr skúffunni á ný. Að þessu sinni er því fléttað inn í þá frásögn að íslenska hagkerfið sé svo gallað að eina bjargráðið sé innganga í Evrópusambandið. Veruleikinn er bara sá að gögnin styðja ekki söguna. Árið 2023 óskaði hópur þingmanna sem hafði talað mikið um gróða- og græðgisverðbólgu eftir því að fjármála- og efnahagsráðherra rannsakaði þátt fyrirtækja í verðbólgunni. Niðurstaðan lá fyrir árið eftir. Hún var skýr: Fáar vísbendingar voru um aukna álagningu fyrirtækja. Greining Seðlabankans benti þvert á móti til þess að álagning innlendra fyrirtækja hefði ekki ýtt undir verðbólgu heldur jafnvel dregið úr henni. Þetta var skýrslan sem þeir þingmenn sem töluðu mest um „gróðaverðbólgu“ kölluðu sjálfir eftir. Þarna var kenningin prófuð. Niðurstaðan átti að skera úr um málið. Vandi þeirra var sá að niðurstaðan sannaði ekki kenningu þeirra. Hún hrakti hana. Nú stígur Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og eindreginn stuðningsmaður ESB-aðildar, fram og kynnir „hagnaðardrifna verðbólgu (gróðaverðbólgu)“ nánast eins og óumdeilda staðreynd. Hún minnist ekki á skýrsluna. Ekki á sérkeyrslu Hagstofunnar sem hún byggðist á. Ekki á greiningu Seðlabankans. Ekki á að þjóðarútgjöld jukust um 17% á aðeins tveimur árum í kjölfar lágra vaxta og mikils hallareksturs hins opinbera. Nei, aftur er hin einfalda saga sögð: Fyrirtækin nýttu sér ástandið og almenningur borgaði brúsann. Þetta gerist ekki í tómarúmi. Ása Berglind hefur sjálf gert Evrópusambandið að sérstöku umfjöllunarefni sínu í sumar. Það er því erfitt að líta á þessa framsetningu öðruvísi en sem lið í baráttunni fyrir já-atkvæði. Hugtakinu gróðaverðbólgu er komið fyrir í þeirri frásögn að verðbólga og hátt verðlag séu fyrst og fremst séríslenskur vandi sem ESB-aðild muni leysa. Steininn tekur úr þegar þingmaður setur slíka kenningu fram án þess að takast á við sterkustu íslensku gögnin sem mæla gegn henni. Í stað vandaðrar vitrænnar umfjöllunar fáum við einfalda sögu um fyrirtæki sem nýta sér óvissu til að hækka verð. Viljandi er litið er fram hjá því að það er búið að skoða þetta og það er ekki fótur fyrir þessu. Þetta er pólitískur popúlismi en ekki heiðarleg umræða. Auðvitað eigum við að ræða fákeppni, samkeppni og hátt matvöruverð. En hátt verðlag er ekki það sama og verðbólga. Mikill hagnaður er ekki það sama og aukin álagning. Og ESB-aðild er ekki töfralausn við agaleysi í ríkisfjármálum, óhóflegri eftirspurn eða óstöðugum verðbólguvæntingum. Þinmenn mega eins og aðrir hafa sínar skoðanir á Evrópusambandinu. En þingmaður sem kynnir hagfræðilega kenningu sem staðreynd ber ábyrgð á því að takast einnig á við opinber gögn sem ganga gegn henni. Það dugar ekki að hunsa skýrslu sem unnin var fyrir Alþingi þótt niðurstaðan henti ekki frásögninni. Ef baráttan fyrir já-atkvæði þarf á „gróðaverðbólgu“ að halda sem íslensku gögnin fundu ekki, þá er það ekki íslenska hagkerfið sem glímir við trúverðugleikavanda. Það er málflutningurinn. Höfundur er bæjarstjóri Ölfuss. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar