„Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Valur Páll Eiríksson skrifar 23. júlí 2026 09:02 Hólmar Örn kemst aftur á völlinn eftir bann í kvöld. Vísir/Lýður Valberg „Það er alltaf gaman að spila í Evrópu og fá öðruvísi mótherja. Við erum að mæta góðu liði svo við þurfum að vera á tánum og nýta okkar möguleika hérna heima,“ segir Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, um leik kvöldsins við Zrinjski Mostar í Sambandsdeild Evrópu.
Leikurinn fer fram á Hlíðarenda klukkan 19:15 í kvöld og er sá fyrsti sem Valsmenn spila í Evrópu þetta árið. Zrinjski hefur tvisvar komið hingað til lands og tapað fyrir Breiðabliki í bæði skipti, síðast í fyrra. Þó er um að ræða öflugt lið. „Þetta er öflugt lið. Við þurfum að eiga góðan leik til þess að fara út með góð úrslit,“ segir Hólmar. Hann hlakkar til að komast aftur á völlinn eftir að hafa afplánað tveggja leikja bann í Bestu deildinni. „Já. Maður er búinn að sitja hjá og horfa aðeins á þetta. Ég er við góða heilsu líkamlega og hlakka til að komast út á völl aftur,“ segir Hólmar sem segir óþægilegt að fylgjast með úr stúkunni. Gengi Vals hefur verið undir væntingum í sumar. Hólmar segir margt hafa haft áhrif þar á en allt líti til bjartari vegar. „Við erum að fá fullt af leikmönnum til baka núna úr meiðslum og bönnum. Við höfum verið óheppnir með meiðsli allt tímabilið. En við getum tekið síðasta hálftímann á móti Fram, þó við höfum verið einum færri, þá vorum við komnir með fullt af leikmönnum á völlinn sem hafa spilað saman áður og eru góðir leikmenn. Ég held að það horfi bjartar fram á veginn,“ segir Hólmar. „Andinn er bara fínn og í takti við það að okkur finnst hópurinn vera að breikka og það eru að koma fleiri möguleikar, leikmenn til að velja úr og spila mismunandi leikstíla gegn mismunandi mótherja.“ Valur ákvað að gera breytingar er Hermann Hreiðarsson var látinn fara sem þjálfari liðsins eftir örfáa mánuði í starfi. Chris Brazell er tekinn við en Valur hefur tapað öllum þremur leikjunum undir hans stjórn hingað til. Hefur þetta haft áhrif á hópinn? „Þetta hefur alltaf áhrif. Nú hefur maður verið hérna í gegnum nokkur þjálfaraskipti og auðvitað horfa leikmenn líka inn á við. Það er partur af þessu. Það er auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn. Þetta er partur af þessu og við þurfum bara að fókusa á sjálfa okkur og sjá til þess að maður skili góðri frammistöðu og sjá hvert það tekur okkur.“ Viðtalið við Hólmar í heild má sjá að neðan. Klippa: Erfið staða en allt á uppleið Evrópuleikir dagsins: 16:30 RFS - Vestri (Sýn Sport Ísland 2) 19:00 Stjarnan - Ilves (Sýn Sport Ísland 2) 19:15 Valur - Zrinjski Mostar (Sýn Sport Ísland)
Valur Besta deild karla Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira