Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar 21. júlí 2026 09:01 „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt.“ Þessi setning, sem birtist á forsíðu Vísis úr BA-ritgerð Körlu Önnu Karlsdóttur við Háskólann á Akureyri, kom sumum í opna skjöldu. En ekkert í þessari grein kom mér á óvart. Innflytjendur í þessari rannsókn lýstu kunnuglegri sögu: háskólamenntun sem er ekki metin, átján ár föst í ræstingum, sjálfstraust sem molnar niður og virðing sem kemur ekki fyrr en íslenskan er orðin „nógu góð“ Þetta er bara ein staðfesting á því sem við höfum bent á áratugum saman. Hvenær verður hlustað? Fyrir nokkrum vikum skrifaði dómsmálaráðherra, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, grein „Verkin tala“. Þar taldi hún upp afrekaskrá sína um útlendingalög, afturköllun verndar, brottfararstöð og styttri kærufresti. Og svo, nánast sem hliðarathugasemd, að ríkisstjórnin sé „að auka fjárframlög til íslenskukennslu … til að gefa fólki … raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu“. Verkin tala vissulega. Skoðum tölurnar. Samkvæmt svari félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn á Alþingi í vetur var framlag ríkisins til íslenskukennslu fyrir útlendinga, umreiknað á hvern innflytjanda, 9.065 krónur árið 2008. Árið 2022 var sama tala komin niður í 2.380 krónur, meira en 70% raunlækkun , á sama tíma og fjöldi innflytjenda á Íslandi rúmlega tvöfaldaðist, úr 27.248 í 61.148. Fræðsluaðilar sem kenna íslensku hafa sjálfir staðfest að stuðningur á hvern nemanda hafi lækkað niður í þriðjung frá 2017. Þetta er ekki fjárfesting í inngildingu. Þetta er niðurskurður, falinn á bak við háleit orð. Er innflytjenda att inn á vinnumarkaðnum til að fylla eyður? Þar má nefna til dæmis í fiskvinnslu, umönnun, byggingariðnaði og ferðaþjónustu, án nokkurrar kröfu um íslenskukunnáttu fyrir fram. Samkvæmt 14. gr. í lögum um atvinnuréttindi útlendinga (97/2002) eiga atvinnurekendur og stéttarfélag að upplýsa starfsfólk um grunnnámskeið, íslenskunámskeið, samfélagsfræðslu og aðra þá fræðslu sem honum og fjölskyldu hans stendur til boða, en hvergi er skilgreint hver eigi að hafa eftirlit með því né hvaða viðurlög liggi við því að gera það ekki. Hér er til dæmis svið þar sem dómsmálaráðherrann gæti látið verkin tala. Þegar dvöl innflytjenda ílengist, þeir giftast, eignast börn og verða hluti af hagkerfinu og menningunni blasir við að tungumálið sem átti að vera lykillinn að samfélaginu er notað sem tæki til að halda fólki niðri. MIPEX 2020, alþjóðleg úttekt á inngildingarstefnu ríkja, staðfestir þetta: Ísland fær einungis 56 af 100 stigum en er sagt „lítillega óhagstætt“ þegar kemur að hreyfanleika á vinnumarkaði. Innflytjendur sem koma utan EES hafa fá tækifæri til að bæta hæfni sína eða komast áfram í starfi, ólíkt því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum. OECD staðfesti sömu sögu í fyrra; hvergi í samanburðarlöndum er ofmenntun innflytjenda jafn útbreidd og á Íslandi og tungumálakunnátta þeirra mælist lakari en í flestum aðildarríkjum, þrátt fyrir að atvinnuþátttaka sé hvergi hærri. Skýrsluhöfundur tekur af allan vafa um framtíðina með því að benda á að opinber framlög til íslenskukennslu fullorðinna innflytjenda eru lág í samanburði við hin Norðurlöndin og það að fyrirhugaðar hækkanir duga lítið til að brúa bilið. Fólk er sem sagt nógu gott til að vinna en ekki nógu gott til að upplifa reisn og virðingu innan samfélagsins sem felst í alvöru jöfnum tækifærum til þátttöku. Svo má líka ræða hversu mikil vanvirðing það er fyrir íslenskri tungu að ekki sé lögð markviss og metnaðarfull fjárfesting í að tryggja að allir sem hér búa hafi greiðan aðgang að tækifærum til að læra hana. Þetta er ekki nýtt vandamál sem þessi ríkisstjórn, þar með talin dómsmálaráðherra, erfði. Þetta er kerfi sem stjórnvöld, hvert á fætur öðru, hafa kosið að viðhalda á meðan þau eigna sér orðræðuna um „raunveruleg tækifæri“. Þá skulum við hlusta á þau. Hér fara á eftir fjörutíu rannsóknir, skýrslur og opinber svör síðustu tuttugu ára sem segja það sama, aftur og aftur, og ef vilji er til staðar til að láta verkin tala, leynast þar hundruð tillagna um raunveruleg tækifæri til að laga kerfi sem hefur brugðist innflytjendum og samfélaginu öllu. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður, doktorsnemi hjá deild margbreytileika og menntunar og höfundur skýrslunnar Fullorðinsfræðsla meðal innflytjenda (2023), unnin fyrir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. 1.Karla Anna Karlsdóttir. (2025). Upplifun innflytjenda af kynþáttafordómum á íslenskum vinnumarkaði [BA-ritgerð]. Háskólinn á Akureyri. Skemman. 2.Vala Jónsdóttir, Kristín Erla Harðardóttir og Ragna Benedikta Garðarsdóttir. (2009). Innflytjendur á Íslandi: Viðhorfskönnun. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. 3.Unnur Dís Skaptadóttir og Helga Ólafsdóttir. (2010). Komið til móts við fjölbreytileika: Fullorðinsfræðsla fyrir innflytjendur og samþættingu. Ráðstefnurit Netlu – Menntakvika. 4.Nichole Leigh Mosty. (2023). Fullorðinsfræðsla meðal innflytjenda: Greining á stefnu og rannsóknum. Skýrsla unnin fyrir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. 5.Susan Rafik Hama. (2012). „Að brjótast úr viðjum vanans“: Áhrif menningar og félagslegrar stöðu kvenna frá Miðausturlöndum á þátttöku þeirra í símenntun á Íslandi [meistararitgerð]. Háskóli Íslands. 6.Elín Júlíana Sveinsdóttir. (2012). Staða, tækifæri og upplifun pólskra kvenna í og eftir atvinnuleysi á Íslandi [meistaraverkefni]. Háskóli Íslands. 7.Elsa Arnardóttir og Rúnar Helgi Haraldsson. (2014). Origin and multiple discrimination. Fjölmenningarsetur. 8.Sigrún Ólafsdóttir, Jón Gunnar Bernburg. (2010). Fordómar og geðræn vandamál; Samanburður á þremur löndum. 9.Aleksandra Chlipala og Sólborg Jónsdóttir. (2014). Greining á starfsmenntun pólskra atvinnuleitenda. Gátt – ársrit um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun. 10.Þóra Christiansen og Erla S. Kristjánsdóttir. (2016). „Veggurinn er alltaf til staðar“: Upplifun háskólamenntaðra innflytjenda af samskiptum og samningsstöðu gagnvart vinnuveitendum. Íslenska þjóðfélagið, 7(1). 11.Guðrún Vala Elíasdóttir. (2016). Landnemaskólinn II: Rýnt í gerð og notkun námskrár í fullorðinsfræðslu [meistararitgerð]. Háskóli Íslands. 12.Napierała, J. og Wojtyńska, A. (2017). Trapped in migrants' sectors? Polish women in the Icelandic labour market. International Migration, 55(1). 13.Alþýðusamband Íslands. (2018). Íslenskur vinnumarkaður. 14.Burdikova, A., Barillé, S., Meckl, M. og Soffía Gísladóttir. (2018). Underemployment of immigrant women in Iceland: A case study. Nordicum-Mediterraneum, 13(1). 15.Burdikova, A., Meckl, M. og Barillé, S. (2018). Icelandic case study: Overcoming the underemployment of immigrant women in Akureyri. Í Enhanced labour market opportunities for immigrant women: Case studies from arctic cities. Nordregio. 16.OECD/European Union. (2018). Settling In 2018: Indicators of immigrant integration. 17.OECD. (2018). OECD skills studies: Skills on the move: Migrants in the survey of adult skills. 18.Claudie Ashonie Wilson og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir. (2019). Jafnrétti innflytjenda á atvinnumarkaði: Jafnir möguleikar innflytjenda til atvinnu hjá hinu opinbera. Réttur Aðalsteinsson & Partners. 19.Hagstofa Íslands. (2019). Félagsvísar: Sérhefti um innflytjendur. Hagtíðindi, 104(2). 20.Ómar Hjalti Sölvason og Markus Hermann Meckl. (2019). Samfélag án aðgreiningar? Viðhorf innflytjenda á Íslandi til símenntunar og íslenskunámskeiða. Háskólinn á Akureyri. 21.Unnur Dís Skaftadóttir og Kristín Loftsdóttir. (2019). Konur af erlendum uppruna – Hvar kreppir að? Félagsmálaráðuneytið. 22.UNESCO. (2019). Global education monitoring report 2019: Migration, displacement and education: Building bridges, not walls. 23.Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir, Fjóla María Lárusdóttir, Helen Gray og Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir. (2020). Viska Erasmus+ Visible skills of adults: National report Iceland. 24.Solano, G. og Huddleston, T. (2020). Migrant Integration Policy Index 2020: Iceland. MIPEX. 25.OECD. (2021). Language Training for Adult Migrants: Making Integration Work. 26.Hoffmann, L., Innes, P., Wojtyńska, A. og Unnur Dís Skaptadóttir. (2021). Adult immigrants' perspectives on courses in Icelandic as a second language: Structure, content, and inclusion in the receiving society. Journal of Language, Identity, and Education. 27.Vífill Karlsson. (2022). Innflytjendur og staða þeirra á vinnumarkaði í covid-kreppu. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. 28.Guðrún Pétursdóttir. (2023). Birtingarmyndir dulinna fordóma og mismunun í garð innflytjenda á Íslandi. 29.Kjartan Jónsson. (2022). Um stuðning stjórnvalda við íslenskukennslu. Kjarninn. 30.Fabricius, L. og Westerberg, T. (2023). Language training services for adult immigrants in the Nordic countries: A comparative study. Nordisk Ministerråd. 31.Viktor Máni Hilmarsson. (2023). Inngilding innflytjenda og flóttafólks í dreifbýli og smærri samfélög: Tækifæri og áskoranir [bakkalárritgerð]. Háskóli Íslands. 32.OECD. (2023). Skills and Labour Market Integration of Immigrants and their Children in Iceland. 33.Alþingi. (2024). Þingskjal 972/154. mál: Svar félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn Jóhanns Páls Jóhannssonar um íslenskukennslu fyrir útlendinga. 34.Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. (2024). Hvítbók um málefni innflytjenda. 35.OECD. (2024). International Migration Outlook 2024: Iceland. 36.Nichole Leigh Mosty og konur af erlendum uppruna á Íslandi. (2018). #MeToo – frásagnir kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. 37.Þóra Christiansen, Erla S. Kristjánsdóttir. (2016). Veggurinn er alltaf til staðar: Upplifun háskólamenntaðra innflytjenda af samskiptum og samningsstöðu gagnvart vinnuveitendum. 38.ASÍ. (2023). Réttindabrot á vinnumarkaði 39.Varða (2025) Staða launafólks á Íslandi 2025 40.Steinunn Bragadóttir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (2025) Tvöföld mismun kvenna í hópi innflytjenda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nichole Leigh Mosty Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
„
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun