„Frábært að skora fimm mörk hérna heima” Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 20. júlí 2026 22:23 Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur getur verið sáttur með sína menn í kvöld Vísir/Viktor Freyr Haraldur Freyr Guðmundsson var afar sáttur eftir sannfærandi 5-2 sigur Keflavíkur á ÍA í Bestu deild karla í kvöld. Hann hrósaði liðsheildinni eftir leik og sagði leikmenn sína hafa verið tilbúna í verkefnið frá fyrstu mínútu.
Aðspurður hvað hann hefði verið ánægðastur með í frammistöðunni nefndi hann fyrst og fremst samheldni liðsins. „Bara ánægðastur með liðsheildina. Menn voru tilbúnir á fyrstu mínútu að berjast fyrir hvern annan og gera þetta sem lið. Svo er ég hrikalega ánægður með mörkin sem við skorum. Þau hefðu náttúrulega getað orðið fleiri en við tökum þrjú stig.“ Keflavík mætir toppliði Víkings í næstu umferð og sagði Haraldur að sigurinn í kvöld gæfi liðinu aukið sjálfstraust fyrir það verkefni. „Það er bara fyrst og fremst sjálfstraust. Við þurfum að fara í Víkina og reyna að gera það sama, ná í þrjú stig þar. Það verður erfitt verkefni.“ Með sigrinum færðist Keflavík upp í efri hluta deildarinnar en Haraldur sagðist ekki vera farinn að horfa sérstaklega á töfluna. „Það er svo stutt á milli í þessu. Við tökum bara einn leik í einu. Við áttum góða frammistöðu á móti Blikum og fengum ekkert út úr henni. Nú komum við aftur með góða frammistöðu og fáum þrjú stig. Við verðum bara að halda áfram.“ Keflavík skoraði fimm mörk í leiknum, þar af fjögur með glæsilegum langskotum. Haraldur sagðist þó ekki gera upp á milli marka þó að hann viðurkenndi að falleg mörk væru alltaf skemmtileg. „Auðvitað er gaman að sjá falleg mörk og það voru mörg langskot sem rötuðu inn í dag.“ Hann taldi jafnframt að sigurinn hefði getað orðið enn stærri. „Við áttum þrjú skot í stöng og slá og svo önnur dauðafæri inni í teig. Þetta hefði hæglega getað orðið stærri sigur, en það er frábært að skora fimm mörk hérna heima.“
Besta deild karla Íslenski boltinn Keflavík ÍF Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Sjá meira