Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar 16. júlí 2026 12:01 Þeir sem þekkja mig vita að ég hef gífurlega gaman að kosningum, á kjördag fer ég ætíð í mín fínustu jakkaföt til að fagna lýðræðinu. Óháð niðurstöðu kosninga er kjördagur alltaf fagnaðardagur, kosningavakan og dagarnir þar á eftir eru svo nýttir til að sleikja sárin ef svo ber undir. Ég er hins vegar ekki jafn spenntur fyrir kjördag ESB-kosninganna og kvíði mjög hvernig næstu dagar eftir kjördag verða, óháð niðurstöðu kosninganna. Það er meðal annars af því að báðar hreyfingar tala um hversu slæmt Ísland yrði ef það er ekki sett X við þeirra málstað. Ég er smá hræddur um að til slíkra óreiðu kæmi þann 30. ágúst næstkomandi að NATÓ mótmælin 1949 verða eins og kettlingur í samanburði. Talsmáti marga Já liða er eins og að hér yrði endalaus óðaverðbólga líkt og var hér á 9. áratugnum. Þeir sem ekki vilja ganga í ESB eru sagðir vera á launaskrá hjá stórútgerðinni, ég hef mínar efasemdir að Sólveig Anna sé á launaskrá hjá Guðmundi í Brim. Svo er sagt að Evran muni lækka öll verð á einu bretti af því að spænskur tómatur er ódýrari á Spáni en hér á Íslandi. Það verður allt æðislegt við það eitt að ganga í ESB. Þetta yrði líkt og þegar Dóróthea kom til Oz, lífið yrði loksins í lit. Og þegar rýnt er í reynslusögur hjá þeim þjóðum sem gengu í ESB er oft að heyra þennan drauma óm sem Já liðar tala um. Það er þó einn lítill galli við þær reynslusögur fyrir Ísland, þær snúast oftar en ekki um fjórfrelsið sem við erum nú þegar hluti af í gegnum EES samninginn. Talsmenn marga Nei liða er svo á þá leið að Ísland myndi verða tjáningarlaust land með ekkert fullveldi. Nú veit ég ekki hvernig þú lesandi góður hugsar um lönd á við Finnland og Ungverjaland en persónulega finnst mér þetta vera fullvalda ríki sem hafa sína rödd. Ungverjar voru nú duglegir að tjá sig gegn ESB í tíð Viktor Orbán, jafnvel einum of á köflum. Persónulega hefur mér fundist þessi umræða því afskaplega ömurlega leiðinleg. Í besta falli eru viðmælendur heitt í hamsi en í versta falli fara viðmælendur með illindi sitt á hvað og saka hvor um annan um hinu ljótustu hluti. Þetta líkist að vissuleyti hinni pólitísku umræðu sem við sjáum vestanhafs, þar sem einungis er um tvo valkosti að ræða og því er ekkert hægt að kjósa einhvern milliveg. Ég velti því fyrir mér líka hvort það þurfi að vera þetta endalausa hræðsluáróður ef við kjósum vitlaust. Það liggur við að maður viti meira um ókosti þess að kjósa Nei eða Já en kosti þess sökum að stór hluti af púðri beggja hreyfinga fer í að tala um það hvað það yrði ömurlegt að kjósa hinn kostinn. Í stað þess að tala frekar um hið jákvæða og hinu frábæru kosti sem það væri að fara í ESB og þá frábæru kosti við núverandi ástand. Það tók Breta tæp fimm ár að fara úr ESB eftir Brexit kosningarnar. Á þeim tíma komst vart annað að en viðræðurnar úr ESB. Hið áhugaverða við Brexit kosningarnar er að þær snerust að miklu leyti um fjórfrelsið, og þá sérstaklega innflytjendamál. Og þeir sem vilja fara aftur, sakna mjög fjórfrelsið, sem við höfum í gegnum EES samninginn. Er hin mögulegi ábati við að ganga ESB þess virði til að kljúfa þjóðina enn frekar næstu fimm árin? Erum við fara að nenna að rífast um þetta í 5 ár í viðbót? Höfundur er viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar