Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar 15. júlí 2026 10:00 Við lifum á viðsjárverðum tímum þar sem stríð geysa víða um heim. Ekkert virðist þokast í átt til friðar. Víða eru við völd karlmenn með skrýtna sjálfsmynd sem skipta um skoðun á mínútu fresti, vilja meira og meira og svífast einskis. Lega Íslands gerir það að verkum að ákjósanlegt er að hafa hér ítök. Það þekkja Íslendingar sem fæddir eru fyrir seinni heimsstyrjöld, er breskur og síðan amerískur her höfðu hér aðstöðu. Við sem herlaus þjóð þurfum vissulega að vera á varðbergi og verjast ef að okkur er sótt. Þegar appelsínuguli einræðisherrann i vestri vil eignast Grænland er Ísland kannski næst á lista hans yfir lönd sem gott væri að ráða yfir. Við heyrum í fréttum af rússneskum skuggaflota á sveimi umhverfis fiskiskip í okkar landhelgi. Einnig af stærðarinnar bresku flugmóðuskipi í Hvalfirði líkt og í seinna stríði. Vitum vel af okkar veiku hlekkjum eins og t.d. sæstrengjunum sem tengja okkur rafrænt við umheiminn. Við þurfum að fylgjast vel með atburðarásinni í heimsmálunum og vita hverjir eru vinir okkar og hverja ber að varast. NATO er okkar varnarbandalag og aldrei fyrr en nú hefur reynt á samstarf þeirra þjóða sem mynda það bandalag. Nýlega var haldinn aðalleiðtogafundur NATO Ankara i Tyrklandi, þar sem forystumenn og konur lögðu á ráðin og báru saman bækur sínar. Eins og gestgjafar gjarnan gera leysa þeir gesti sína út með gjöf að skilnaði. Gjöfin sem forsætisráðherra Íslands fékk og líklega allir hinir var ekki tyrkneskt teppi heldur byssa. Já skambyssa i fallegum viðarkassa með byssukúlum. Til hvers ? Hvað á Kristrún Frostadóttir að gera með þessa byssu ? Hver er skotmarkið ? Þessi kveðjugjöf segir allt um gefandann og hana á að afþakka. Við viljum að Ísland sé áfram herlaust land. Viljum ekki að börnin okkar læri að beita byssum eða þurfi að sinna herskyldu. það er samtal en ekki vopnaburður sem leysir vanda þeirra þjóða sem standa i átökum. Ísland getur verið í forystu um frið og betri heim með samtali. Tökum einbeitt og ákveðin skref í átt til friðar með samtali. Sýnum stolt okkar að vera herlaus þjóð á fallegri eyju í Atlantshafi sem ræðir málin og leysir þann vanda sem upp kemur með kærleika. Við þurfum ekki byssur. þær bæta ekki heiminn. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ebba Margrét Magnúsdóttir Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar