Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. júlí 2026 13:02 Forsvarets Efterretningstjeneste er leyniþjónusta danska hersins. Forsvarets Efterretningstjeneste Leyniþjónusta danska hersins, Forsvarets Efterretningstjeneste, stækkar margfalt við sig á sviði netvarna- og árása. Einhver hundruð nýrra starfsmanna verða ráðin á sviðið á næstunni.
Børsen fjallar um málið en þar er rætt við Mark Fiedel sem fer fyrir netsviði dönsku leyniþjónustunnar. Að því er hann segir verða þessir nýju starfsmenn þjálfaðir í að gera árásir á netinnviði hugsanlegra óvinaþjóða. „Árið 2026 ætlum við að ráða mörghundruð nýja starfsmenn, og margir þeirra koma til með að sinna þeim flóknu upplýsingatækniverkefnum sem við fáumst við,“ segir Mark Fiedel. Það er raunar leyndarmál nákvæmlega hve marga starfsmenn á að ráða, eins og svo margt sem við kemur leyniþjónustunni. Markmiðið er þó að þessir nýju starfsmenn verði þaulþjálfaðir netstríðsmenn. Samkvæmt umfjöllun Børsen hafa fjárútlát til leyniþjónustunnar nær tvöfaldast frá árinu 2019. Í ár nema þau tæplega tveimur milljörðum danskra króna, tæplega 40 milljörðum íslenskra. Að sögn Marks Fiedel er það helst tvennt sem veldur því að leyniþjónustan geri sig nú meira gildandi á sviði netárása. Ógnin sem steðji að Danmörku á þessu sviði sé nú mun áþreifanlegri en áður og ör tækniframþróun hafi skapað bæði hættur og tækifæri.
Danmörk Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Sjá meira