Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. júlí 2026 09:47 Áætlað er að 550 manns hafi látist vegna hita á tímabilinu 21. til 29. maí og tæplega 2.200 á tímabilinu 18. til 28. júní í Englandi og Wales. Getty Talið er að yfir 2.700 hafi látist af völdum hita í Englandi og Wales í kjölfar hitabylgju sem þar geisaði í maí og júní. Rauðar veðurviðvaranir vegna hitans voru gefnar út í lok júní en talið er að flest dauðsföll hafi átt sér stað í júnímánuði þegar hiti náði tæpum 37 stigum.
Í skýrslu teymis frá Imperial Collage London, bresku veðurstofunni og London School of Hygiene and Tropical Medicine eru dauðsföll fyrri ára notuð til samanburðar og þannig „umframdauðsföll“ af völdum hitans áætluð. Þar er talið að 550 manns hafi látist vegna hitans á tímabilinu 21. til 29. maí og tæplega 2.200 á tímabilinu 18. til 28. júní í Englandi og Wales, segir í umfjöllun BBC. Byggingar í Bretlandi séu ekki byggðar til þess að takast á við slíkan hita og fólk verði því berskjaldað fyrir langvarandi hita og raka sem hafi gríðarlegt álag á líkamann. Börn og eldra fólk séu í mestri hættu auk þeirra sem glíma við einhvers konar heilsufarsvanda. Báðar hitabylgjurnar hafi verið af völdum svokallaðrar „hitahvelfingar“ sem fangi heitt loft, að sögn sérfræðinga. Hitahvelfingin hafi versnað vegna loftslagsbreytinga af mannavöldum en jörðin hafi hlýnað um tæplega eina og hálfa gráðu frá iðnbyltingu. Búist er við að hitabylgjur verði tíðari, ákafari og langvarandi eftir því sem meira af gróðurhúsalofttegundum er losað. Hitabylgjan fyrr í sumar hafi verið sú útbreiddasta og ákafasta sem mælst hafi í Evrópu og er talið að hún hafi kostað meira en 20.000 mannslíf. Í Þýskalandi, þar sem 41,7 stig mældust, er talið að tæplega 5.500 manns hafi látist, samkvæmt bráðabirgðagögnum stjórnvalda, segir í umfjöllun The Guardian, og dauðsföllum í Frakklandi fjölgaði um þrjátíu prósent.
Veður Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 England Bretland Tengdar fréttir Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Hitamet hafa verið slegin víða í Evrópu síðastliðna daga þar sem hitabylgja geisar um álfuna. Víða er búist við þrumuveðri í kjölfar hitans og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir fleiri en 1300 látna vegna veðursins. 28. júní 2026 19:16 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga. Meðalhiti í byggðum landsins var 5,2 stig sem er 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og hefur aldrei verið hærri. Áður var árið 2014 hlýjasta árið á landsvísu. 2. janúar 2026 16:41 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira
Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Hitamet hafa verið slegin víða í Evrópu síðastliðna daga þar sem hitabylgja geisar um álfuna. Víða er búist við þrumuveðri í kjölfar hitans og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir fleiri en 1300 látna vegna veðursins. 28. júní 2026 19:16
2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga. Meðalhiti í byggðum landsins var 5,2 stig sem er 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og hefur aldrei verið hærri. Áður var árið 2014 hlýjasta árið á landsvísu. 2. janúar 2026 16:41