Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar 13. júlí 2026 07:02 Af hverju höfum við sætt okkur við að háir vextir, verðbólga og efnahagslegur óstöðugleiki séu einfaldlega hluti af því að búa á Íslandi? Svo lengi sem ég man eftir mér hefur þetta verið veruleiki íslenskra heimila. Samt sjáum við að víða í Evrópu búa heimili við meiri stöðugleika og hagstæðari lánakjör. Eflaust höfum við flest spurt okkur: Af hverju getur þetta verið svona annars staðar en ekki hér? En með tímanum förum við smám saman að trúa því að þetta verði aldrei öðruvísi. Við aðlögum okkur, tökum aukavinnu, vinnum lengri vinnudaga og gerum það sem þarf til að ná endum saman. Að lokum förum við að líta á þetta sem eðlilegan hlut, eins og þetta sé einfaldlega verðið sem við Íslendingar þurfum að borga fyrir að búa hér. Þegar ég greiði af húsnæðisláninu mínu fer stærri hluti greiðslunnar í vexti en í að greiða niður sjálfa skuldina. Ég veit að ég er ekki ein um það. Þetta er veruleiki sem þúsundir íslenskra heimila búa við í hverjum einasta mánuði. Nú stendur þjóðin frammi fyrir því að taka afstöðu til þess hvort hefja eigi á ný viðræður við Evrópusambandið. Að mínu mati ætti sú umræða fyrst og fremst að snúast um hvaða áhrif hugsanlegur samningur gæti haft á íslensk heimili. Einmitt þess vegna finnst mér eðlilegt að vilja sjá samninginn áður en þjóðin tekur endanlega afstöðu. Aðeins þannig getum við byggt umræðuna á raunverulegum forsendum og metið með upplýstum hætti hvaða áhrif samningurinn gæti haft á vexti, verðbólgu og lífskjör. Sú spurning á skilið málefnalega umræðu, ekki að vera afgreidd með hræðslu eða slagorðum. Þetta snýst ekki fyrst og fremst um kenningar eða flokkspólitík heldur um daglegt líf fólks. Við eigum að gera meiri kröfur til þess samfélags sem við byggjum. Hvað viljum við skilja eftir fyrir komandi kynslóðir? Samfélag þar sem ungt fólk þarf sífellt að leggja meira á sig til að eignast heimili, eða samfélag sem er tilbúið að kanna hvort hægt sé að gera betur? Ég hef hlustað á lögfræðinga, hagfræðinga og sérfræðinga í Evrópumálum. Því meira sem ég hlusta, því betur sé ég hversu skiptar skoðanirnar eru. Sumir telja að Ísland hafi til mikils að vinna, aðrir telja að við höfum einskis að leita. Þegar sérfræðingar eru svona ósammála spyr ég mig: Hvernig á ég, sem venjulegur borgari, að mynda mér upplýsta skoðun? Fyrir mér er svarið einfalt. Ég vil kanna hvaða möguleikar standa Íslandi raunverulega til boða. Ég vil ekki taka ákvörðun byggða á slagorðum eða hræðslu. Ég vil taka hana á grundvelli staðreynda. Ég veit ekki hver niðurstaða viðræðna yrði. Enginn veit það fyrr en þær hafa farið fram. En ég veit að íslensk heimili eiga skilið að við könnum af alvöru hvort hægt sé að stuðla að meiri stöðugleika og betri lífskjörum. Við eigum ekki að óttast upplýsingar. Við eigum að afla upplýsinganna, leggja þær fyrir þjóðina og treysta henni til að taka upplýsta ákvörðun. Kannski er kominn tími til að hætta að sætta sig við að svona sé þetta bara. Þess vegna kýs ég já til að sjá þann 29. ágúst. Höfundur er einn stofnenda samtakanna Sjá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar