Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar 12. júlí 2026 19:01 Umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið tók að mínu mati ranga beygju snemma í ferlinu. Klárt og mikilvægt fólk með allskonar fínar háskólagráður og titla ræða allskonar tölfræði fortíðar. Hagvöxtur, kaupmáttur, atvinnuleysi undanfarinna ára á Íslandi er borið saman við Evrópusambandsríki og svo eru dregnar ályktanir hvort við ættum að ganga til samningaviðræðna eða ekki. Auðvitað skipta hagtölur máli. Staðreyndin er þó sú að allar þessar tölur, töflur og gröf horfa aftur á veginn, á heim sem ekki lengur er til og mun líklega aldrei aftur vera til. Þetta var heimur þar sem stórveldin réðu ferðinni en virtu að mestu leiti alþjóðaskuldbindingar og þar með rétt smærri ríkja til að ráða sér (að mestu leiti) sjálf. Ísland er eitt þessara ríkja og hefur notið góðs af þessu fyrirkomulagi og það endurspeglar sig í þessum hagtölum sem fólk puntar í Excel og flaggar til að sannfæra aðra um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið. Í dag lifum við í heimi óvissu. Rússland ræðast á nágrannalönd. Með grimmri atvinnustefnu afiðnaðarvæðir Kína önnur ríki og flytur út atvinnuleysi. Meira að segja Bandaríkin – sem bæði við Íslendingar og íbúar Evrópusambandsins hafa reitt sig á í varnarmálum og til að ganga úr skugga um örugga vöruflutninga um heim allan – hafa ráðist á Íran, Venesúela og búa sig undir eitthvað svipað í Kúbu (svona af því bara). Ekki nóg með það þá standa Bandaríkin í stöðugum hótunum við Danmörku af því þeim langar að eignast Grænland (líka svona af því bara). Kínverskir togarar veiða við strandir veikari landa ef þeim sýnist, ekki bara í Asíu heldur í Suður-Ameríku. Í heimi þar sem stórar þjóðir gera það sem þeim sýnist skipta lögsögur ekki máli. Og ekki heldur alþjóðareglur. Hvað þá reglur Íslands. Stóru löndin gera það sem þeim sýnist á kostnað smærri landa, nema ef lítil lönd eiga stóra vini sem koma þeim til varnar. Eins og Evrópusambandslöndin gerðu þegar svo virtist vera sem Bandaríkin væru tilbúin að beita valdi til að taka yfir Grænland. Við vitum auðvita ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Eina sem við vitum með vissu er að heimurinn er uppfullur óvissu, meiri óvissu en fyrir 5-10 árum. Það er erfitt að verja sig gegn áhættunni sem fylgir óvissu. En með því að ganga í Evrópusambandið drögum við þó úr áhættunni sem óvissunni fylgir því að vera fámenn og auðug eyja án varna í þessum nýja heimi. Evrópa er líklegri til að koma okkur til hjálpar ef ofurtogarar stærri þjóða vilja veiða fiskinn okkar. Eða ef Rússar ákveða að klippa á sæstrengi sem halda okkur tengdum við alheiminn. Eða ef framtíðar forseti Bandaríkjanna fær þá flugu í hausinn að hann vilji eignast Ísland. Þessar sviðsmyndir kunna að vera ólíklegar, en þær eru ekki lengur óhugsandi. Velferð og framtíð okkar hangir í togi með Evrópu. Við getum talað um sjálfstæði og hagtölur gærdagsins eins og okkur sýnist. En ef við myndum ekki sterkari tengsl við Evrópu þá verða hagtölur framtíðarinnar háðar vilja stærri ríkja og eina sjálfræðið sem við munum hafa verður sjálfstæði til að gera eins og aðrir segja okkur. Auðvitað eigum við að segja já við samningaviðræðum í ágúst. Það gefur okkur tíma til að semja á meðan við sjáum hvernig heimur fullur af óvissu þróast. Ef þróunin í heimsmálunum heldur sínu striki, og samningurinn sem ESB býður okkur á endanum er sanngjarn, sem hann líklega verður, þá ættum við líka að segja já við honum. Höfundur er hagfræðingur og höfundur bókarinnar Eikonomics - hagfræði á mannamáli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar