Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar 10. júlí 2026 16:17 Hjá fólki með vímuefnaröskun og fjölþættan félagslegan vanda er heimilisleysi oft fyrirsjáanleg afleiðing kerfis sem bregst á mikilvægasta tímapunktinum – þegar meðferð lýkur. Þótt einstaklingur hafi lokið árangursríkri meðferð blasir við honum gjarnan bið eftir áfangaheimili, stuðningshúsnæði, endurhæfingu eða annarri nauðsynlegri þjónustu. Á meðan eykst hættan á bakslagi, félagslegri einangrun og að lokum heimilisleysi. Við vitum að meðferð getur skilað góðum árangri. Vandinn er sá að þegar meðferð lýkur tekur við þjónustukerfi sem einkennist of oft af biðlistum, úrræðaskorti og skorti á samfelldri og samþættri eftirfylgd. Þannig glatast sá árangur sem náðist í meðferðinni og hættan á bakslagi eykst. Þetta er veruleiki sem margir þekkja af eigin raun. Þegar fólk sér fram á langa bið eftir húsnæði, endurhæfingu eða öðrum nauðsynlegum stuðningi er hætt við að vonleysi taki yfir. Þá minnkar trúin á að breytingar séu raunhæfar og áhuginn á að taka þátt í úrræðum dvínar. Vandinn er því ekki skortur á vilja einstaklingsins heldur skortur á heildstæðri og samfelldri þjónustu sem styður við bata þegar mest á reynir. Á meðan á meðferð stendur byggja margir upp þann bataauð sem rannsóknir sýna að skiptir sköpum fyrir langtímabata. Bataauður felur meðal annars í sér sjálfstraust, félagsleg tengsl, húsnæðisöryggi, atvinnu, menntun og aðgengi að stuðningi. En þessi auður er ekki varanlegur. Ef einstaklingur útskrifast út í óöryggi getur hann glatast á fáeinum vikum. Þá tapar ekki aðeins einstaklingurinn heldur einnig samfélagið þeirri fjárfestingu sem þegar hefur verið lögð í meðferðina. Veiki hlekkurinn er ekki einstaklingurinn heldur þjónustukerfið. Nýleg rannsókn mín á bataauði meðal fólks í langtímameðferð sýnir að þátttakendur höfðu byggt upp góðan félagslegan bataauð og sterkan menningarlegan bataauð. Hins vegar mældust þættir undir persónulegan bataauð þ.e. húsnæði, atvinna, fjáhagur og menntun veikustu þættirnir. Það er athyglisvert vegna þess að þetta eru ekki fyrst og fremst þættir sem einstaklingurinn stjórnar sjálfur. Þeir ráðast af því hvort samfélagið bjóði upp á húsnæði, atvinnuúrræði, endurhæfingu, samfellda og samþætta þjónustu. Við höfum búið til þjónustukerfi þar sem fólk bíður á hverju stigi bataferlisins. Það bíður eftir meðferð, bíður eftir áfangaheimili, bíður eftir endurhæfingu og bíður eftir varanlegu húsnæði. Á meðan bíður fíknin ekki. Hver biðlisti eykur hættuna á bakslagi, geðrænum vanda, öðrum heilsufarlegum vandamálum, fjölskyldurofi og að lokum heimilisleysi. Lausnirnar liggja fyrir. Tryggja þarf að enginn útskrifist úr meðferð án öruggs húsnæðis eða skýrrar einstaklingsáætlunar um samfellda og samþætta þjónunstu. Fjölga þarf áfangaheimilum og stuðningshúsnæði, stytta bið eftir endurhæfingu og samhæfa betur heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, starfsendurhæfingu, barnavernd og fangelsismál. Í málefnum einstaklinga með fjölþættan félagslegan vanda á meðferð ekki að vera endapunktur heldur upphaf skipulagðs bataferlis og þannig fækkum við fólki á biðlistum. Spurningin er ekki hvort meðferð virkar. Spurningin er hvort við ætlum að halda áfram að eyða árangri hennar með því að senda fólk út í biðlista, óöryggi og heimilisleysi. Við vitum hvað þarf til að fólk nái bata – en ósamþætt kerfið stendur of oft í vegi fyrir honum. Höfundur er félagsráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Félagsmál Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar