Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Sindri Sverrisson skrifar 10. júlí 2026 11:45 Elías Már Ómarsson raðaði inn mörkum fyrir Víkinga líkt og hann hafði áður gert í atvinnumennsku en nú er hann úr leik vegna slitins krossbands í hné. Vísir/Anton Brink Elías Már Ómarsson, framherji Víkings, sleit krossband í hné þegar hann meiddist á gervigrasinu á Víkingsvelli í leiknum við Ungverjalandsmeistara ETO á þriðjudagskvöld. Hann spilar því ekki meira með liðinu á tímabilinu.
Þetta staðfesti Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net í dag. Víkingar unnu ETO 1-0 en meiðsli Elíasar skyggðu svo sannarlega á gleðina. Hér að neðan má sjá þegar Elías meiddist. Elías sneri heim til Íslands í vetur eftir langan atvinnumannsferil og náði að skora 12 mörk í 14 leikjum í Bestu deildinni, og tvö í Mjólkurbikarnum, áður en hann meiddist. Hann gerði sig líklegan til að slá markametið í Bestu deildinni en nú er ljóst að hann verður frá keppni í langan tíma, eða á bilinu 6-12 mánuði. Hugað að Elíasi Má eftir að hann meiddist á þriðjudagskvöld.Vísir/Diego Sölvi Geir var afar ósáttur eftir leikinn á þriðjudag, vegna meiðsla Elíasar, og beindi spjótum sínum að Reykjavíkurborg sem hann sagði ekki hafa staðið sig í því að endurnýja gervigrasið í Víkinni. „Meiðslin hjá Elíasi Má settu svartan blett á annars frábært kvöld. Elías Már festir takkana í gömlu og handónýtu gervigrasi sem okkur er boðið upp á hér í Víkinni. Við erum nýbúin að missa leikmann í kvennaliðinu okkar í krossbandsmeiðsli og aðstaðan á þessum velli er til háborinnar skammar,“ sagði Sölvi og vísaði til þess að Ísfold Marý Sigtryggsdóttir hefur einnig slitið krossband í hné á vellinum. „Þetta gervigras er löngu komið á tíma og Reykjavíkurborg þarf að hysja upp um sig buxurnar. Víkingur er þessa stundina flaggberi Íslands í fótbolta í Evrópu og það er skandall að við séum að spila á jafn lélegum, og í raun hættulegum, velli og raun ber vitni. Það er ekki boðlegt hvernig aðstaðan er hérna í Víkinni,“ sagði Sölvi.
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira