Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar 10. júlí 2026 07:03 Það er nokkuð sérstakt að fylgjast með umræðum um komandi kosningar varðandi viðræður við Evrópusambandið. Og þá helst um fiskveiðar. Við seljum um 70 % af okkar afla til ESB, lítið unninn eða óunninn en ef við vinnum fiskinn í neytendapakkningar þá þurfum við að greiða tolla. Innan sambandsins yrði Ísland undanþegið öllum tollum og gera má ráð fyrir að tekjur landsins gætu hækkað verulega við inngöngu. (Benda má t.d. á að íslenskur, færeyskur og grænlenskur fiskur selst á mjög háu verði innan Danmerkur). Staða Íslands Við Íslendingar erum í fremstu röð fiskveiðiþjóða heimsins (í 22. sæti á heimsvísu og skv. skilgreiningu ESB; „Powerhouse of fishing“). Í sambandinu eru aðeins 7 þjóðir sem stunda veiðar að ráði og eru Spánverjar þar stærstir, þá Danir / Frakkar (Ítalir veiða aðeins í Miðjarðarhafinu, en þeir hafa stærsta flotann).Fiskveiðistjórnum á Íslandi er í fremstu röð á alþjóðavísu og hefur verið mörgum öðrum þjóðum til eftirbreytni og er nokkuð oft vitnað til hennar. Við inngöngu í sambandið, myndum við ekki missa þá stöðu, líklega styrkja hana. Þá má einnig benda á að reglan um hlutfallslegan stöðugleika (relative stability) tryggir að engin ríki ESB geta veitt innan íslenskrar lögsögu, og hefur reglan verið í gildi frá 1983. Ekki hafa verið gerðar á henni breytingar.Varðandi flökkustofna þá þyrftum við að taka slaginn innan ESB (eins og við gerum í raun nú, með tvíhliða samningum, þríhliða eða fjölhliða samningum við helstu nágrannaríki okkar). Innganga Íslands Gangi Ísland inn er mjög trúlegt, ef ekki öruggt, að við fengjum sæti í öllum áhrifamestu ráðum sem fjalla um fiskveiðar og yrðum leiðandi í fiskveiðistjórnum / kvótaákvörðunum innan sambandsins. Því er ákaflega líklegt að Ísland myndi koma að stjórnun helstu sjávarútvegsstofnana innan ESB, og nánast óhugsandi að Ísland missi hlutdeild í veiðum eða þurfi að gefa frá sér veiðiheimildir. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Það er nokkuð sérstakt að fylgjast með umræðum um komandi kosningar varðandi viðræður við Evrópusambandið. Og þá helst um fiskveiðar. Við seljum um 70 % af okkar afla til ESB, lítið unninn eða óunninn en ef við vinnum fiskinn í neytendapakkningar þá þurfum við að greiða tolla. Innan sambandsins yrði Ísland undanþegið öllum tollum og gera má ráð fyrir að tekjur landsins gætu hækkað verulega við inngöngu. (Benda má t.d. á að íslenskur, færeyskur og grænlenskur fiskur selst á mjög háu verði innan Danmerkur). Staða Íslands Við Íslendingar erum í fremstu röð fiskveiðiþjóða heimsins (í 22. sæti á heimsvísu og skv. skilgreiningu ESB; „Powerhouse of fishing“). Í sambandinu eru aðeins 7 þjóðir sem stunda veiðar að ráði og eru Spánverjar þar stærstir, þá Danir / Frakkar (Ítalir veiða aðeins í Miðjarðarhafinu, en þeir hafa stærsta flotann).Fiskveiðistjórnum á Íslandi er í fremstu röð á alþjóðavísu og hefur verið mörgum öðrum þjóðum til eftirbreytni og er nokkuð oft vitnað til hennar. Við inngöngu í sambandið, myndum við ekki missa þá stöðu, líklega styrkja hana. Þá má einnig benda á að reglan um hlutfallslegan stöðugleika (relative stability) tryggir að engin ríki ESB geta veitt innan íslenskrar lögsögu, og hefur reglan verið í gildi frá 1983. Ekki hafa verið gerðar á henni breytingar.Varðandi flökkustofna þá þyrftum við að taka slaginn innan ESB (eins og við gerum í raun nú, með tvíhliða samningum, þríhliða eða fjölhliða samningum við helstu nágrannaríki okkar). Innganga Íslands Gangi Ísland inn er mjög trúlegt, ef ekki öruggt, að við fengjum sæti í öllum áhrifamestu ráðum sem fjalla um fiskveiðar og yrðum leiðandi í fiskveiðistjórnum / kvótaákvörðunum innan sambandsins. Því er ákaflega líklegt að Ísland myndi koma að stjórnun helstu sjávarútvegsstofnana innan ESB, og nánast óhugsandi að Ísland missi hlutdeild í veiðum eða þurfi að gefa frá sér veiðiheimildir. Höfundur er verkfræðingur.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar