Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar 10. júlí 2026 08:03 Fimmtudaginn 9 júlí 2026 varð smá fjaðrafok í ESB umræðunni þegar það spurðist út að nýlega hefði Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, staðfest með algerlega afdráttarlausum hætti við umræður í Hollenska þinginu að fiskveiðistefna ESB væri ófrávíkjanleg og ef Ísland gengi í ESB þá þyrfti það að gangast að fullu undir regluverk ESB og afsala sér yfirráðum yfir auðlindum sínum, þar með talið fiskimiðunum. Þetta hefur valdið smá titringi í skotgröfunum, enda stangast þetta algerlega á við það sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, hefur hingað til haldið fram (og því til sönnunar vísað í annars óútskýrð samtöl sín við óskilgreinda aðila í stjórnkerfi ESB). Þingmenn fleiri þjóða innan ESB hafa talað á sömu nótunum. Rétt er að minna á að sambandsþjóðir hafa neitunarvald, og Hollandi væri í lófa lagið að stöðva inngöngu Íslands í ESB nema við afhendum sambandinu full yfirráð yfir fiskimiðum og öðrum auðlindum sem Hollendingar ásælast greinilega. Augljóst er að ekki geta bæði haft rétt fyrir sér: ýmist er Rob Jetten að segja Hollensku þjóðinni ósatt eða þá að Þorgerður Katrín er að segja þeirri Íslensku ósatt. Þetta hljóta að teljast merkileg tíðindi, og má renna líkum að því að þetta eigi eftir að hafa áhrif á marga kjósendur, þar sem þeir eru sjálfsagt ófáir sem alla jafna hefðu hneigst til "já" sem munu eiga erfitt með að samþykkja að Ísland afhendi skilyrðislaust öll yfirráð yfir auðlindum sínum. Eins og vænta má hafa því flestir Íslenskir fjölmiðlar gert þessu góð skil. Á því er þó ein undantekning og æpandi er þögn fréttastofu RÚV, sem hefur ekkert minnst á þetta. Á fréttastofu RÚV telja menn að fréttir um gráðuga máfa og skordýrafaraldur í Danmörku eigi meira erindi við Íslendinga heldur en nýjar upplýsingar um afstöðu hugsanlegra viðsemjenda þegar kemur að Evrópusambandsaðild. Þetta er orðið neyðarlega augljóst. Efast einhver lengur um hlutdrægni fréttastofu RÚV í ESB umræðunni? Höfundur er tölvunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Fimmtudaginn 9 júlí 2026 varð smá fjaðrafok í ESB umræðunni þegar það spurðist út að nýlega hefði Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, staðfest með algerlega afdráttarlausum hætti við umræður í Hollenska þinginu að fiskveiðistefna ESB væri ófrávíkjanleg og ef Ísland gengi í ESB þá þyrfti það að gangast að fullu undir regluverk ESB og afsala sér yfirráðum yfir auðlindum sínum, þar með talið fiskimiðunum. Þetta hefur valdið smá titringi í skotgröfunum, enda stangast þetta algerlega á við það sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, hefur hingað til haldið fram (og því til sönnunar vísað í annars óútskýrð samtöl sín við óskilgreinda aðila í stjórnkerfi ESB). Þingmenn fleiri þjóða innan ESB hafa talað á sömu nótunum. Rétt er að minna á að sambandsþjóðir hafa neitunarvald, og Hollandi væri í lófa lagið að stöðva inngöngu Íslands í ESB nema við afhendum sambandinu full yfirráð yfir fiskimiðum og öðrum auðlindum sem Hollendingar ásælast greinilega. Augljóst er að ekki geta bæði haft rétt fyrir sér: ýmist er Rob Jetten að segja Hollensku þjóðinni ósatt eða þá að Þorgerður Katrín er að segja þeirri Íslensku ósatt. Þetta hljóta að teljast merkileg tíðindi, og má renna líkum að því að þetta eigi eftir að hafa áhrif á marga kjósendur, þar sem þeir eru sjálfsagt ófáir sem alla jafna hefðu hneigst til "já" sem munu eiga erfitt með að samþykkja að Ísland afhendi skilyrðislaust öll yfirráð yfir auðlindum sínum. Eins og vænta má hafa því flestir Íslenskir fjölmiðlar gert þessu góð skil. Á því er þó ein undantekning og æpandi er þögn fréttastofu RÚV, sem hefur ekkert minnst á þetta. Á fréttastofu RÚV telja menn að fréttir um gráðuga máfa og skordýrafaraldur í Danmörku eigi meira erindi við Íslendinga heldur en nýjar upplýsingar um afstöðu hugsanlegra viðsemjenda þegar kemur að Evrópusambandsaðild. Þetta er orðið neyðarlega augljóst. Efast einhver lengur um hlutdrægni fréttastofu RÚV í ESB umræðunni? Höfundur er tölvunarfræðingur.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar