Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar 8. júlí 2026 19:01 Að gefnu tilefni telur Arkitektafélag Íslands mikilvægt að minna á þá ábyrgð sem fylgir því að móta hið byggða umhverfi til framtíðar. Sú ábyrgð er sérstaklega rík þegar kemur að opinberum byggingum sem verða rammi um daglegt líf, uppeldi og menntun komandi kynslóða. AÍ tekur heilshugar undir að fara þurfi vel með opinbert fé. Opinberar framkvæmdir verða að byggja á skýrum forsendum, raunhæfum kostnaðaráætlunum, vandaðri verkefnastjórn og faglegri eftirfylgni. Það er því sjálfsagt að ræða hagkvæmni, forgangsröðun og ábyrgð við uppbyggingu skóla og leikskóla. En hagkvæmni og gæði eru ekki andstæður. Vönduð hönnun er ekki lúxus eða aukaatriði, heldur mikilvægur hluti af ábyrgri meðferð opinbers fjár. Vel hönnuð skóla- og leikskólaumhverfi hafa áhrif á börn og starfsfólk, heilsu þeirra og vellíðan. Arkitektúr snýst í síauknum mæli um að byggingar myndi tengsl: tengi fólk, hverfi, samfélög, náttúru og jafnvel kynslóðir. Hlutverk þeirra er því stærra en aðeins veggirnir sjálfir. Þegar vel tekst til verða byggingar staðir sem skapa samveru, öryggi, minningar og tengsl. Það er varhugavert ef umræðan um opinberar framkvæmdir þróast þannig að hönnun, arkitektasamkeppnir eða fagleg hönnunarferli séu gerð að blóraböggli fyrir kostnaðarvanda. Ef verkefni reynast umfangsmeiri eða kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir þarf að rýna heildarferlið, en svarið getur ekki verið að veikja faglegt ferli eða tala niður gildi byggingarlistar. Arkitektasamkeppnir eru ein leið til að taka vandaðar og upplýstar ákvarðanir um opinber mannvirki. Ef bæta þarf ferla eða skýra kostnaðarramma á fyrri stigum á að ganga í það. Lausnin er ekki að afskrifa faglegar aðferðir, heldur að nýta þær betur. Sama á við um umræðu um að „nýta teikningar sem til eru“ eða endurtaka lausnir milli staða. Slík nálgun getur verið skynsamleg þegar hún er faglega unnin, en skólar og leikskólar eru ekki stöðluð vara sem hægt er að færa óbreytta milli lóða. Hönnun þarf að taka mið af stað, lóð, dagsbirtu, aðkomu, öryggi, útisvæðum og tengslum við nærumhverfi. Höfundarréttur liggur hjá arkitektum og ef ástæða er til að gera fleiri eintök þarf að semja við höfundarrétthafa um afnot af hugverkinu. Arkitektar vilja taka virkan þátt í samtali um ábyrgari uppbyggingu opinberra bygginga. Góð byggingarlist getur verið falleg, hagkvæm, ábyrg og samfélagslega mikilvæg í senn. Það er ánægjulegt að Reykjavíkurborg hafi nýverið veitt arkitekt heiðursviðurkenningu borgarlistamanns í fyrsta sinn. Sú viðurkenning sendir mikilvæg skilaboð um að arkitektúr sé menningarlegt, samfélagslegt og listrænt afl í borginni. Þau skilaboð þurfa einnig að endurspeglast í daglegum ákvörðunum um skóla, leikskóla og önnur opinber mannvirki. Það er of dýrt að vanda ekki til verka. Höfundur er framkvæmdastjóri Arkitektarfélag Íslands og skrifar fyrir hönd félagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arkitektúr Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar