Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar 8. júlí 2026 07:45 Nokkuð hefur farið fyrir áhyggjum yfir því af hálfu nei-sinna að Ísland muni verða áhrifalítið innan Evrópusambandsins ef til aðildar kemur og að fulltrúarnir sex á Evrópuþinginu sem þjóðinni verður úthlutað yrðu mjóróma innan um háværar raddir hagsmunavarða stórþjóðanna. Þeim virðist lítil huggun í því að þegar miðað er við höfðatölu hafa smæstu þjóðirnar margfalt fleiri fulltrúa en þær stærstu. Og þau horfa gjarnan fram hjá þeirri augljósu staðreynd að 6 fulltrúar hafa meiri áhrif en enginn. Það gleymist líka iðulega að taka með í reikninginn að Ísland, rétt eins og önnur aðildarríki, fengi eitt sæti í ráðherraráðinu, sem tekur jafnan þátt í lagasetningu ESB og er í raun sá vettvangur sem ríki nota til að hafa áhrif og verja sína eigin hagsmuni (á þinginu eru aftur á móti stunduð hefðbundnari flokkastjórnmál). Aldrei er heldur minnst á dómara við Evrópudómstólinn, sem túlkar lögin, eða sæti í framkvæmdastjórninni, sem undirbýr og framkvæmir – og þótt þessi hlutverk feli í sér hlutleysi en ekki hagsmunagæslu þá er það til marks um fulla þátttöku aðildarríkja í stjórnkerfinu að þeim er útdeild á jafnaðargrundvelli og óháð stærð. En látum þetta bara liggja milli hluta. Það sem vekur meiri furðu er að aldrei er tilgreint hvernig hið meinta áhrifaleysi smáþjóða birtist í reynd. Það er aldrei vísað í dæmi um það hvernig litlar þjóðir eiga að hafa farið halloka gagnvart heimtufrekju stóru aðildarríkjanna. Ekki er mér kunnugt um að þessi beygur byggi á reynslu eða frásögnum af upplifun annarra þjóða. Ef til vill þykir of flókið að spyrja. En svörin eru til. Þau benda bara til hins gagnstæða. Því samkvæmt nýjustu mælingu Evrópuloftvogarinnar svokölluðu (Eurobarometer) telja 72% Evrópubúa að heimaland þeirra hafi notið góðs af aðild að ESB. Þetta hlutfall er meðaltal yfir álfuna alla og svona afgerandi niðurstaða er auðvitað í sjálfu sér merkilegur vitnisburður. Það er hins vegar alveg sérstaklega áhugavert að skoða hvaða þjóðir það eru sem helst telja sig hafa notið aðildarinnar. Írland trónir á toppnum en 93% Íra telja að þeir hafi notið góðs af verunni í ESB. Næst koma Portúgal og Litháen þar sem hlutfallið er 92%. Hlutfallið er 91% í Lúxemborg líkt og á Möltu en í Danmörku er það 89%. Höldum áfram hálfa leið niður listann: Spánn (82%), Eistland (82%) Slóvenía (81%), Slóvakía (81%), Finnland (79%), Svíþjóð (78%). Tvennt vekur athygli hér: Nær allar þjóðirnar sem upp eru taldar hér að ofan eru fremur eða mjög smáar. Aðeins Spánverjar geta þarna talist stór þjóð á evrópskan mælikvarða. Þarna eru örþjóðirnar Malta og Lúxemborg, sem hvor um sig hefur 6 fulltrúa á Evrópuþinginu, í sérflokki. Lúxemborg er auðvitað í hjarta álfunnar. En Maltverjar eru eyjarskeggjar á jaðrinum eins og við og reyndar Írar líka. Og þarna má finna þjóðirnar sem standa okkur næst, bæði menningarlega og landfræðilega: Norðurlöndin og Írland. En hver ætli sé þá upplifun stórþjóðanna? Þjóðverjar mælast rétt við meðaltal, en 74% þeirra telja að aðild að ESB hafi verið þeim til hagsbóta. Á Ítalíu er hlutfallið hins vegar 64% sem er talsvert undir meðaltali. Og í Frakkland er það aðeins 58%, sem hlýtur að teljast mjög lágt í samanburði við ESB í heild, þar sem næstum því þrír af hverjum fjórum telja að heimaland sitt hafi hagnast á aðild. Og við megum ekki gleyma Bretlandi, sem var eitt af stóru löndunum fjórum, áður en Bretar sögðu skilið við Evrópusambandið. Nú sjá Bretar mjög eftir útgöngunni og meirihluti þeirra vill reyndar helst ganga aftur í sambandið. Líkast til vegna þess, meðal annars, að þeir hafa uppgötvað að þeir eru smærri og áhrif þeirra á alþjóðasviðinu eru minni nú, þegar þeir standa einir, heldur en þegar þeir voru hluti af sterkri heild. Hvaða ályktanir getum við dregið af þessu? Þetta er auðvitað bara mæling á viðhorfum almennings í ESB löndum. Og ég ætla ekki að þykjast hafa lagst í djúpa tölfræðilega rannsóknarvinnu. En fljótt á litið er áhugavert að finna svo skýrt mynstur og svona sterk viðhorf einmitt meðal þeirra þjóða sem eru litlar og líkjast okkur. Það er einfaldlega ekki trúlegt í þessu ljósi að hagsmunir smáþjóða innan ESB víki kerfisbundið fyrir hagsmunum stærri ríkja. Það er ekki trúlegt að þær séu áhrifalausar en jafnframt svona sælar með sinn hlut. Og það er í hæsta máta ótrúlegt að þær telji sig hafa glatað fullveldinu. Í raun er miklu líklegra að smærri þjóðirnar upplifi einmitt að þær styrki fullveldi sitt með ESB aðild, auki áhrif sín og stækki „heimavöllinn“. Þetta er alveg í samræmi við grundvallarhugmyndina um réttarríki og regluvædd samskipti. Lögin jafna leika. Þau koma í veg fyrir að hinir sterku fari sínu fram í krafti aflsmunar. Í raun ætti ekki að koma neinum á óvart að sameiginlegt regluverk sé einmitt til þess fallið að tryggja hagsmuni smáríkjanna. Stærðin virðist nefnilega skipta máli í vissum skilningi - eða smæðin öllu heldur. Því það eru smáu þjóðirnar sem eru líklegri til þess að upplifa að heimalandið hafi notið góðs af ESB aðild. Já, og Norðurlöndin þar á meðal. Litlar þjóðir. Okkur líkar þjóðir. Ríkar þjóðir. Af hverju ætti það ekki að eiga við um okkur líka? Eigum við að trúa því að við séum eitthvað lakari en aðrar þjóðir? Auðvitað er því ekki haldið fram að smáríki ráði lögum og lofum í Brussel. En sú hugmynd að þau séu áhrifalausir leiksoppar stenst ekki skoðun. Ríki beita áhrifum eftir ýmsum leiðum í stjórnkerfi ESB og þingið er ekki sú þýðingarmesta. Smáþjóðum hefur vegnað vel á þessum vettvangi og þær upplifa að aðild þjóni hagsmunum þeirra. Engin gögn benda til þess að þær séu áhrifalausar og það er engin ástæða til þess að ætla að einhver önnur lögmál muni gilda um Ísland. Í stuttu máli virðast áhyggjur af uppburðar- og áhrifaleysi Íslands innan Evrópusambandsins vera algjörlega heimatilbúin minnimáttarkennd. Höfundur situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Páll Rafnar Þorsteinsson Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun