Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar 7. júlí 2026 13:02 Ég svo sem skil að sumir vilji alls ekki sjá hvernig samningur við Evrópusambandi myndi líta út. Þeir sem hafa það gott í efnahagslegri einangruninni á Íslandi, þar sem fákeppni, samþjöppun og samráð hafa fengið að grassera í áratugi. Þetta fólk vill auðvitað ekki rugga bátnum, það er er á fyrsta farrými með töglin og hagldirnar í þjóðfélaginu, og himinháir vextir og óstöðugur örgjaldmiðill trufla það ekki. Fyrirtækin þeirra gera hvort sem er upp í evrum, og/eða starfa á fákeppnismarkaði og við hin erum bara strandaglópar í krónuhagkerfinu, borgum íbúðirnar okkar upp margfalt, borgum dýrustu tryggingarnar og verslum dýrasta matinn í álfunni. Fólkið sem á þessar örfáu blokkir sem eiga allt; útgerðarfyrirtækin, flutningsfyrirtækin, verslunarkeðjurnar, það vill auðvitað ekki samkeppni frá Evrópu. En við hin, viljum við heldur ekki sjá hvernig samningur við Evrópusambandið myndi líta út? Hverju myndum við tapa á því að fara í samningaviðræðurnar? Að sjálfsögðu töpum við engu með því að eiga þetta samtal við Evrópusambandið, við erum auðvitað bara að segja já við því að skoða málið. Eigum við að sleppa því að skoða málið? Er betra að vita ekki hvernig þessi samningur myndi líta út? Er allt í þvílíku himnalagi að við viljum ekki einu sinni að vita hvernig þessi samningur yrði? Ég fyrir mitt leyti vil vita hvað fælist í slíkum samningi. Ég treysti fólki til þess að útbúa góð samningsdrög við Evrópusambandið, og ég treysti þjóðinni til þess að annað hvort samþykkja drögin, eða hafna þeim. Og ég spái því að um það bil fimm árum eftir að við göngum í Evrópusambandið þá munum við ekki skilja af hverju við vorum ekki löngu búin að þessu. Og barnabörnin mín mun bara greiða upp íbúðirnar sína 1,3 sinnum, en ekki 3svar sinnum. Það eitt og sér er grundvöllur fyrir því að segja „Já“ 29. ágúst. Höfundur er sölustjóri og ljósahönnuður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Ég svo sem skil að sumir vilji alls ekki sjá hvernig samningur við Evrópusambandi myndi líta út. Þeir sem hafa það gott í efnahagslegri einangruninni á Íslandi, þar sem fákeppni, samþjöppun og samráð hafa fengið að grassera í áratugi. Þetta fólk vill auðvitað ekki rugga bátnum, það er er á fyrsta farrými með töglin og hagldirnar í þjóðfélaginu, og himinháir vextir og óstöðugur örgjaldmiðill trufla það ekki. Fyrirtækin þeirra gera hvort sem er upp í evrum, og/eða starfa á fákeppnismarkaði og við hin erum bara strandaglópar í krónuhagkerfinu, borgum íbúðirnar okkar upp margfalt, borgum dýrustu tryggingarnar og verslum dýrasta matinn í álfunni. Fólkið sem á þessar örfáu blokkir sem eiga allt; útgerðarfyrirtækin, flutningsfyrirtækin, verslunarkeðjurnar, það vill auðvitað ekki samkeppni frá Evrópu. En við hin, viljum við heldur ekki sjá hvernig samningur við Evrópusambandið myndi líta út? Hverju myndum við tapa á því að fara í samningaviðræðurnar? Að sjálfsögðu töpum við engu með því að eiga þetta samtal við Evrópusambandið, við erum auðvitað bara að segja já við því að skoða málið. Eigum við að sleppa því að skoða málið? Er betra að vita ekki hvernig þessi samningur myndi líta út? Er allt í þvílíku himnalagi að við viljum ekki einu sinni að vita hvernig þessi samningur yrði? Ég fyrir mitt leyti vil vita hvað fælist í slíkum samningi. Ég treysti fólki til þess að útbúa góð samningsdrög við Evrópusambandið, og ég treysti þjóðinni til þess að annað hvort samþykkja drögin, eða hafna þeim. Og ég spái því að um það bil fimm árum eftir að við göngum í Evrópusambandið þá munum við ekki skilja af hverju við vorum ekki löngu búin að þessu. Og barnabörnin mín mun bara greiða upp íbúðirnar sína 1,3 sinnum, en ekki 3svar sinnum. Það eitt og sér er grundvöllur fyrir því að segja „Já“ 29. ágúst. Höfundur er sölustjóri og ljósahönnuður.
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar