Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar 7. júlí 2026 07:31 Hugleiðingar og skoðanir almenns borgara um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Kjarni málsins er einfaldur. Skuldbindingarnar sem fylgja aðild eru skýrar og lagalega bindandi. Margt af þeim ávinningi sem lofað er byggist hins vegar á forsendum efnahagsþróunar og pólitískum ákvörðunum sem enginn getur ábyrgst fyrirfram. Loforð eru ekki sáttmálar og munurinn skiptir máli Þegar rætt er um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu koma oft sömu fullyrðingarnar til eyrna: vextir munu lækka, matvælaverð mun dragast saman, hagvöxtur mun aukast. Þetta eru fullyrðingar og loforð sem gefin eru og flutt fram eins og þau séu staðreyndir. En eru þetta staðreyndir? Þegar aðildarríki gengur í Evrópusambandið samþykkir það löggjöf sambandsins í heild eða það sem kallað er acquis communautaire sem er gríðar mikið safn af bindandi lögum, reglugerðum og tilskipunum sem hafa safnast upp á áratugum. Aðildarviðræðurnar snúast um hvernig og hvenær einstakir kaflar eru innleiddir. Við sjálfa aðildina verður regluverkið bindandi í heild sinni. Hvort reglurnar verði teknar upp er því ekki samningsatriði í eiginlegum skilningi heldur aðeins hvernig og hvenær þær verða innleiddar. Þetta má segja að regluverkið sé meitlað í stein. Hver er ávinningurinn sem lofað er? Vextir gætu lækkað, mögulega en ákvarðanir um vexti í evrusvæðinu eru teknar af Evrópska seðlabankanum í Frankfurt með hag evrusvæðisins í heild að leiðarljósi, þar sem stærstu hagkerfin hafa eðli máls samkvæmt mest vægi. Íslenskar efnahagslegar aðstæður hafa í reynd engin áhrif á þær ákvarðanir. Við gætum jafnvel lent með vexti sem henta hagsveiflum okkar illa. Matvælaverð gæti lækkað, 25% er tala sem hefur verið fleygt fram í umræðunni. Það er hins vegar ekki bindandi skuldbinding sem fylgir aðildarsamningi heldur hagspá sem byggir á forsendum um samkeppni, flutningskostnað, tolla, launakostnað, skattlagningu og þróun markaða. Enginn getur ábyrgst slíka niðurstöðu fyrirfram. Ísland myndi ganga inn í Sameiginlegu landbúnaðarstefnuna, umfangsmikið og flókið niðurgreiðslukerfi, mótað með þarfir stærri landbúnaðarríkja Evrópu í huga, ekki íslenskar aðstæður. Það eru engar tryggingar um að matar eða almennt neysluverð lækki með inngöngu í ESB. Finnland fékk ekki undanþágu frá landbúnaðarstefnunni vegna sérstöðu sinnar, en fékk sérstakar heimildir vegna norðlægra aðstæðna sinna. En þær fólust að miklu leyti í því að finnska ríkið mátti verja meira af eigin skattfé til að styðja landbúnað sinn. Það sýnir að jafnvel þar sem tekið er tillit til sérstakra aðstæðna er lausnin ekki endilega sú að ESB beri kostnaðinn. Hagvöxtur gæti aukist. Það fer hins vegar eftir þróun bæði íslenska hagkerfisins og evrópska hagkerfisins, sem enginn getur spáð fyrir um með vissu. Hagvöxtur er ekki sjálfvirk afleiðing aðildar heldur ræðst af fjölmörgum þáttum. Takið eftir muninum. Annars vegar: bindandi, tafarlaus, óafturkræf skuldbinding. Hins vegar: kannski, hugsanlega, ef til vill, gæti orðið. Hér er verið að bera saman tvennt sem er í eðli sínu ólíkt. Þetta er ósamhverft samningsuppgjör þar sem kostnaðurinn er skráður í sáttmálatexta og ávinningurinn er í ræðutexta. Eðlileg spurning hlýtur því að vera: Hvenær þurfa þeir sem hvetja til aðildar að sýna fram á að loforðin standist? Nei-hliðin er stöðugt krafin um að sanna að slæmir hlutir muni örugglega gerast. Já-hliðin fær að lofa og fullyrða um ávinning án þess að sýna fram á neinar tryggingar og án þess að svara því hvað gerist ef loforðin ganga ekki eftir. Þegar við segjum já er engin leið til baka. Þegar við segjum nei er alltaf hægt að endurskoða málið í ljósi betri eða nýrra upplýsinga. Óafturkræfni er ekki smáatriði, hún er kjarni málsins. Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill. Íslendingar eiga skilið að vita hvort þeim séu boðnar bindandi skuldbindingar eða aðeins óviss fyrirheiti Höfundur er afgreiðslumaður og bílstjóri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar