Endurkoman dugði ekki í síðasta leiknum á EM Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. júlí 2026 17:33 4-3 tap varð niðurstaðan í síðasta leik Íslands á EM. Judit Cartiel - UEFA/UEFA via Getty Images Ísland tapaði 4-3 gegn Sviss í síðasta leik sínum á Evrópumóti U19 landsliða. Ingibjörg Magnúsdóttir skoraði tvennu og Líf Joostdóttir van Bemmel bætti við. Mörk Íslands hefðu hæglega getað orðið fleiri en færanýtingin var slök og brot var dæmt þegar stelpurnar okkar héldu að þær hefðu skorað jöfnunarmark.
Ljóst var fyrir leik að Ísland ekki möguleika á undanúrslitum. Leikurinn var samt mikilvægur fyrir Ísland en liðið hefði þurft sigur til að komast í umspil fyrir HM U20 sem fer fram á næsta ári. Byrjunarlið Íslands gegn Sviss. Judit Cartiel - UEFA/UEFA via Getty Images Dauðafæri fóru forgörðum Leikurinn hófst með látum og Ísland ógnaði mikið í upphafi en færanýting liðsins var arfaslök. Staðan stóð 3-1 fyrir Sviss í hálfleik en þá hafði Ísland fengið tíu marktækifæri gegn aðeins fjórum marktækifærum Sviss. Freyja Stefánsdóttir og Berglind Hlynsdóttir fengu úrvalsfæri til að taka forystuna á 7. mínútu en Yara Zwyssig setti fæturna út og varði tvöfalt fyrir Sviss. Þvert gegn gangi leiksins náði Sviss forystunni á 16. mínútu. Ramona Schellberger komst á ferðina á vinstri kantinum, keyrði inn á völlinn og skaut föstu skoti í netið með hægri fæti. Áfram hélt Ísland að komast í góð færi en markheppnin var ekki mikil hjá stelpunum okkar. Freyja Stefánsdóttir var einstaklega óheppin þegar skot hennar fór af þverslánni á 24. mínútu. Ingibjörg fyrst Íslendinga á blað Ingibjörg Magnúsdóttir náði loks að skora, fyrsta mark Íslands á mótinu, á 26. mínútu. Markið kom upp úr löngu innkasti frá Sóleyju Eddu Ingadóttur, Freyja Stefánsdóttir flikkaði boltanum áfram og Ingibjörg kláraði færið vel. Jafnt í tvær mínútur Léttirinn var ekki langur hjá Íslandi því aðeins tveimur mínútum síðar tók Sviss forystuna á ný. Langur bolti rataði yfir íslensku vörnina og lenti fullkomlega fyrir framherjann Emanuela Pfister. Henni tókst að fara framhjá markmanninum Herdísi Höllu Guðbjartsdóttur og renna boltanum þægilega í netið. Þriðja mark Sviss kom svo rétt fyrir hálfleik. Melissa Rondalli gerði virkilega vel á vinstri vængnum og skaut boltanum upp við samskeytin á íslenska markinu. Skot sem var algjörlega óverjandi fyrir Herdísi Höllu en vissulega hefði verið hægt að loka betur á það. Gáfu frá sér víti Sviss skoraði sitt fjórða mark á 63. mínútu þegar Herdís Halla braut á sóknarmanni sem var sloppinn í gegn. Emanuela Pfister steig á punktinn, skoraði af öryggi og gerðist markahæsta kona mótsins hingað til. Ingibjörg bætti við og Líf komst á blað Ingibjörg Magnúsdóttir bætti sínu öðru marki við á 70. mínútu. Hún fékk sendingu frá Ragnheiði Þórunni Jónsdóttur, dempaði boltann með bringunni og kláraði færið vel. Líf Joostdóttir van Bemmel skoraði svo þriðja mark Íslands á 83. mínútu, með skalla eftir hornspyrnu frá Védísi Ösp Einarsdóttur. Mark tekið af Íslandi Líf van Bemmel hélt að hún hefði bætt sínu öðru marki við og jafnað leikinn fyrir Ísland í uppbótartíma, aftur eftir hornspyrnu frá Védísi, en brot var dæmt í aðdragandanum og markið fékk ekki að standa. Sár endir á mótinu fyrir Ísland. Þó jafntefli hefði ekki skilað liðinu neinu þá átti þessi endurkoma í dag meira skilið en engin stig.
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Fleiri fréttir Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Sjá meira