KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2026 12:00 KR-vörnin hefur ekki verið styrkleiki liðsins í sumar en sóknarleikurinn er það öflugur að liðið er í öðru sætinu þrátt fyrir að fá á sig öll þessi mörk. Vísir/Diego Botnlið Þórs fær KR í heimsókn í Bestu deild karla í fótbolta á Akureyri í kvöld og það ætti að vera von á mörkum í leiknum ef marka má sumarið til þessa. Eitthvað verður undan að láta í þessum leik því Þórsurum hefur gengið skelfilega á heimavelli og KR-ingum hefur gengið illa á útivelli. Fyrir leikinn í kvöld hafa Þórsarar tapað fimm heimaleikjum í röð en KR-ingar eru stigalausir í síðustu þremur útileikjum og unnu síðast utan Vesturbæjar 8. maí síðastliðinn. KR-ingar fengu á sig þrjú mörk í leiknum gegn Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta um síðustu helgi og fóru því stigalausir á Reykjanesbrautina eftir leik. Varnarleikur KR hefur boðið upp á sláandi tölfræði í sumar. Keflavík kom til baka og vann 3-2 sigur á KR eftir að hafa skorað sigurmarkið undir lokin. KR-liðið hefur fengið á sig 31 mark í fyrstu þrettán deildarleikjum sínum í sumar eða 2,4 mörk að meðaltali. KR er í öðru sæti deildarinnar og hefur unnið níu af fyrstu þrettán leikjum sínum þrátt fyrir þessa hripleku vörn. Aðeins umrætt botnlið Þórs er búið að fá á sig fleiri mörk en KR. Þórsarar hafa fengið á sig 32 mörk eftir 4-2 tap á móti Val um síðustu helgi. KR-ingar hafa reyndar leikið leik meira en átta af hinum ellefu liðum deildarinnar. Þeir gætu því litið aðeins betur út þegar þeir leikir klárast. Það er samt ekki oft sem við sjáum eitt af toppliðum deildarinnar vera eitt af þeim liðum sem fá á sama tíma á sig flest mörk. Leikurinn á móti Keflavík var þriðji leikurinn af síðustu fjórum þar sem KR fær á sig þrjú mörk eða meira og ellefti leikurinn þar sem liðið fær á sig meira en eitt mark. KR hefur skorað 45 mörk eða jafnmörg og Víkingar og skemmtanagildið í leikjum liðsins er í sögulegum hæðum. Liðið er hins vegar níu stigum á eftir toppliði Víkinga vegna þess að liðið hefur þurft að skora þrjú mörk eða meira til að vinna 85 prósent deildarleikja sinna í sumar (11 af 13). Flest mörk fengin á sig í Bestu deild karla í sumar: 32 – Þór Akureyri 31 – KR 29 – FH og Stjarnan 26 – ÍBV og Valur 25 – KA Besta deild karla KR Þór Akureyri Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira
Eitthvað verður undan að láta í þessum leik því Þórsurum hefur gengið skelfilega á heimavelli og KR-ingum hefur gengið illa á útivelli. Fyrir leikinn í kvöld hafa Þórsarar tapað fimm heimaleikjum í röð en KR-ingar eru stigalausir í síðustu þremur útileikjum og unnu síðast utan Vesturbæjar 8. maí síðastliðinn. KR-ingar fengu á sig þrjú mörk í leiknum gegn Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta um síðustu helgi og fóru því stigalausir á Reykjanesbrautina eftir leik. Varnarleikur KR hefur boðið upp á sláandi tölfræði í sumar. Keflavík kom til baka og vann 3-2 sigur á KR eftir að hafa skorað sigurmarkið undir lokin. KR-liðið hefur fengið á sig 31 mark í fyrstu þrettán deildarleikjum sínum í sumar eða 2,4 mörk að meðaltali. KR er í öðru sæti deildarinnar og hefur unnið níu af fyrstu þrettán leikjum sínum þrátt fyrir þessa hripleku vörn. Aðeins umrætt botnlið Þórs er búið að fá á sig fleiri mörk en KR. Þórsarar hafa fengið á sig 32 mörk eftir 4-2 tap á móti Val um síðustu helgi. KR-ingar hafa reyndar leikið leik meira en átta af hinum ellefu liðum deildarinnar. Þeir gætu því litið aðeins betur út þegar þeir leikir klárast. Það er samt ekki oft sem við sjáum eitt af toppliðum deildarinnar vera eitt af þeim liðum sem fá á sama tíma á sig flest mörk. Leikurinn á móti Keflavík var þriðji leikurinn af síðustu fjórum þar sem KR fær á sig þrjú mörk eða meira og ellefti leikurinn þar sem liðið fær á sig meira en eitt mark. KR hefur skorað 45 mörk eða jafnmörg og Víkingar og skemmtanagildið í leikjum liðsins er í sögulegum hæðum. Liðið er hins vegar níu stigum á eftir toppliði Víkinga vegna þess að liðið hefur þurft að skora þrjú mörk eða meira til að vinna 85 prósent deildarleikja sinna í sumar (11 af 13). Flest mörk fengin á sig í Bestu deild karla í sumar: 32 – Þór Akureyri 31 – KR 29 – FH og Stjarnan 26 – ÍBV og Valur 25 – KA
Flest mörk fengin á sig í Bestu deild karla í sumar: 32 – Þór Akureyri 31 – KR 29 – FH og Stjarnan 26 – ÍBV og Valur 25 – KA
Besta deild karla KR Þór Akureyri Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira