Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2026 08:01 Óvissa ríkir um hvað tekur við hjá Phil Mickelson á golfferlinum. Hann hefur verið sakaður um óviðeigandi hegðun í garð kvenna. getty/Michael Miller Ashley Perez, fyrrverandi eiginkona kylfingsins Pats Perez, segir að Phil Mickelson hafi sýnt henni nektarmyndir og beðið hana um að hitta sig þegar þáverandi eiginmaður hennar var sofandi.
Ashley segir í samtali við Skratch að atvikið hafi átt sér stað fyrir Barclays-meistaramótið 2015. Í aðdraganda mótsins bauð Mickelson Perez-hjónunum að dvelja í lúxusvillu sinni meðan á mótinu stæði. Þau þekktust boðið. Skildi dyrnar eftir ólæstar Eitt kvöldið, þegar Pat fór á salernið, tók Mickelson símann sinn upp og sýndi Ashley nektarmynd af sér. Í kjölfarið sagðist hann ætla að skilja svefnherbergisdyrnar sínar eftir ólæstar og hvatti Ashley til að koma til sín þegar Pat væri sofnaður. Ashley greindi Pat ekki frá framferði Mickelsons fyrr en eftir mótið. Hann talaði ekki beint við Mickelson en sagði fjölmörgum aðilum frá því sem sexfaldi risamótsmeistarinn gerði. Á endanum bað Mickelson Pat og Ashley afsökunar. Úthýst úr golfklúbbum Undanfarið hefur verið fjallað mikið um óviðeigandi hegðun Mickelsons í garð kvenna. Skömmu fyrir Opna bandaríska meistaramótið var greint frá því að honum hafi verið úthýst úr The Farms-golfklúbbnum í Santa Fe í Kaliforníu fyrir að hafa snert konu gegn hennar vilja. Í viðtalinu við Ashley segir hún að Mickelson hafi verið rekinn úr tveimur öðrum golfklúbbum á síðustu árum. Ashley er sú fyrsta sem stígur fram undir nafni og sakar Mickelson um óviðeigandi hegðun. Hún vonast til að með því hvetji hún fleiri konur til að gera slíkt hið sama. Grípur til varna Lögmaður Mickelsons, Tom Clare, sendi Skratch yfirlýsingu þess efnis að sumar fullyrðingar Ashleys væru ekki sannleikanum samkvæmt. Hann hefði hins vegar gengist við öðrum hlutum sem hún nefnir. Mickelson, sem er nýorðinn 56 ára, hefur aðeins keppt á einu móti á þessu ári vegna alvarlegs heilsufarsvanda í fjölskyldunni. Ef hann keppir ekki á neinu risamóti í ár verður það í fyrsta sinn síðan 1989 sem það gerist. Ashley og Pat Perez voru gift á árunum 2015-24 og eiga tvö börn saman.
Golf Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira