Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar 27. júní 2026 18:03 Flokkur fólksins (FF) komst til valda á þeirri ímynd að vera flokkur sem stæði vörð um hag almennings, íslensk gildi og sjálfsforræði þjóðarinnar. Flokkurinn hefur um árabil lagt megináherslu á fullveldi Íslands, andstöðu við aðild að Evrópusambandinu og varúð gagnvart frekara valdaframsali til stofnana utan landsins. Nú blasir hins vegar við að þessi grunngildi hafi vikið fyrir ráðherrasætum og setu í ríkisstjórn.Máttvana fædd ríkisstjórn Án Flokks fólksins hefði ríkisstjórn Samfylkingar og Viðreisnar ekki haft þingmeirihluta. Flokkurinn var því ekki aukaleikari við ríkisstjórnarborðið heldur forsenda þess að stjórnin gæti orðið til og haldið velli. Einmitt þess vegna bar honum sérstök skylda til að standa fast við þau mál sem kjósendur hans töldu ófrávíkjanleg ekki síst fullveldismálin. Bókun 35 Þess í stað hefur Flokkur fólksins samþykkt að styðja mál sem ganga þvert á fyrri málflutning hans. Augljósasta dæmið er bókun 35 við EES-samninginn. Inga Sæland lýsti því áður á Alþingi að bókunin fæli í sér að EES-reglur gengju framar íslenskum lögum og taldi að slík forgangsregla bryti gegn stjórnarskránni. Hún lagði mikla áherslu á að Alþingi Íslands ætti að vera hinn eini sanni löggjafi landsins.Eftir að Inga Sæland settist í ráðherrasæti breyttist hins vegar afstaðan. Hún sagðist hafa verið „í villu og svima“ varðandi bókun 35 og að sérfræðingar hefðu fengið hana til að „sjá ljósið“. Rök hennar voru meðal annars þau að innleiðing bókunarinnar gæti styrkt stöðu neytenda gagnvart bönkunum í tilteknum dómsmálum. Sigurjón Þórðarson þingmaður FF viðurkenndi á Alþingi að flokkurinn hefði áður verið andvígur bókun 35, en taldi nú rétt að koma henni í gegn eftir yfirferð sem fór fram í tengslum við ríkisstjórnarmyndunina. Röksemdin varð sú að ekki væri verið að taka á sig nýjar skuldbindingar, heldur staðfesta eldri skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum. Eyjólfur Ármannsson ráðherra FF tók í sama streng þvert á hans fyrri yfirlýsingar fyrir kosningar. Svik við kjósendur Flokks fólksins En fyrir kjósendur flokksins er þetta ekkert smáatriði. Hér er um að ræða grundvallarspurningu um það hvort íslensk lög og íslenskt löggjafarvald eigi að standa framar regluverki ESB þ.e. regluverki sem á rætur sínar í Brussel en ekki á Íslandi. Þegar flokkur sem áður talaði um að berjast gegn slíkri þróun samþykkir hana eftir að hann fær ráðherrastóla, er eðlilegt að kjósendur spyrji hvort sannfæringin hafi breyst eða hvort stólarnir hafi einfaldlega reynst sterkari. Umsókn Íslands um aðild að ESB Sama mynstrið sést í Evrópumálunum. Flokkur fólksins hefur áður krafist þess að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu yrði dregin til baka og lýst andstöðu við aðild. Á vettvangi flokksins hefur fullveldi verið skilgreint sem stjórnskipulegt sjálfstæði og réttur innlendra stofnana til að taka ákvarðanir um íslensk mál. Samt sem áður studdi ríkisstjórnin, með fulltingi Flokks fólksins, að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram 29. ágúst 2026 um hvort Ísland skuli hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Alþingi samþykkti þá ályktun 28. maí. Vissulega má halda því fram að þjóðaratkvæðagreiðsla sé lýðræðislegt tæki. En það breytir ekki því að atkvæðagreiðslan opnar aftur ferli sem hefur eitt meginmarkmið: að sækja um aðild aðild Íslands að Evrópusambandinu. Flokkur sem segist andvígur aðild en tekur þátt í að hrinda slíku ferli af stað getur ekki vikið sér undan pólitískri ábyrgð með því einu að segja að þjóðin eigi lokaorðið!Aðildarviðræður við ESB er umsókn um aðild Íslands að ESB.Þetta vita menn! Svik við kjósendur sem yfirgefa flokkinn Flokkur fólksins hefur valið að halda vonlausri ríkisstjórn á lífi sem annars hefði ekki átt möguleika á þingmeirihluta. Í skiptum fyrir ráðherrastóla hefur flokkurinn sætt sig við bókun 35 og stuðlað að nýrri ESB-vegferð, þvert á fyrri yfirlýsingar, eigin málflutning og þau fullveldissjónarmið sem margir kjósendur flokksins treystu honum fyrir. Þegar ráðherrastólar verða mikilvægari en grundvallarstefna flokks, þá er það ekki málamiðlun. Það er svik við kjósendur. Höfundur er læknir og fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun