Frá Sauðárkróki til Sarajevo: „Ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. júní 2026 09:02 Halldór og aðstoðarþjálfarinn Margrét Magnúsdóttir fylgjast með æfingu U19 landsliðsins. ksí Halldór Jón Sigurðsson er mættur á sitt fyrsta stórmót sem landsliðsþjálfari og segir gott að hafa loksins tíma til að sinna því sem hann gerir best, eftir að hafa starfað í allt öðruvísi umhverfi áður. Spennan er mikil fyrir fyrsta leik Íslands á EM U19 kvenna gegn Austurríki síðar í dag.
Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri (fædd 2007 eða fyrr) er ein af átta þjóðum sem tekur þátt í lokamóti EM 2026 sem fer fram í Bosníu og Hersegóvínu. Ísland verður í riðli með ríkjandi meisturum síðustu fjögurra Evrópumóta, Spáni, ásamt Austurríki og Sviss. Leikirnir verða spilaðir í höfuðborginni Sarajevo og nærliggjandi borginni Zeneca. „Mögulega skemmtilegasti leikurinn fyrir áhorfendur“ Ferðalagið og undirbúningurinn gekk vel að sögn Halldórs landsliðsþjálfara og frábær stemning hefur myndast í hópnum fyrir fyrsta leiknum gegn Austurríki á morgun. Halldór segir hentugra að byrja mótið ekki gegn sterkasta liðinu, Spáni, heldur jafnari andstæðingi frá Austurríki. Donni tekur sig vel út í KSÍ-gallanum. Judit Cartiel - UEFA „Ég held að það sé gott fyrir okkur að byrja á móti Austurríki, sem er með svipað lið og við. Spila meira að segja svipaðan bolta, þetta er mikill kraftabolti. Þær eru aggressívar og erfiðar við að eiga, hápressulið og verður bara mjög spennandi viðureign. Mögulega skemmtilegasti leikurinn fyrir áhorfendur að horfa á, því þetta verður mikill transition leikur. Fram og til baka á báða bóga. Ég held að það sé gott, til að koma okkur í gírinn fyrir síðan aðeins taktískari leik gegn Spáni,“ sagði Halldór í samtali við blaðamann Vísis í Sarajevo í gær. Fjórar breytingar en engin Thelma Karen Fjórar breytingar voru gerðar á hópnum frá því í undankeppninni þegar Ísland tryggði sér sæti á EM. Vonir voru bundnar við að Thelma Karen Pálmadóttir myndi koma aftur inn í hópinn en hún fékk ekki keppnisleyfi frá félagsliði sínu í Svíþjóð, BK Hacken. Halldór segir hinar breytingarnar hafa verið af taktískum ástæðum, hann vantaði fleiri varnarmenn. „Það voru fjórar sem misstu sætið úr síðustu undankeppni og fjórar nýjar komu inn, af taktískum ástæðum. Við tókum fleiri varnarmenn núna en voru þá, sem varrúðarráðstöfun. En svo hafa þessir leikmenn líka bara verið að standa sig gríðarlega vel. Það á við um alla leikmenn sem eru í hópnum, þær hafa verið að spila vel og spila mikið, sem er mikilvægt til að koma fljúgandi inn í verkefnið.“ Tólf manna starfslið til staðar Sem fyrr segir er þetta fyrsta stórmót Halldórs sem landsliðsþjálfari. Hann var einn eftirsóttasti þjálfari landsins þegar hann hætti í fyrra eftir fjögur góð ár hjá Tindastóli í Bestu deild kvenna og tók við U19 landsliðinu í október síðastliðnum. Landsliðsumhverfið er að mörgu leiti ólíkt því sem þekkist hjá félagsliðum, og kannski sérstaklega ólíkt umhverfinu sem Halldór þekkti í sínum heimabæ á Sauðárkróki. Hjá fjársveltu liði Tindastóls þurfti að hlaupa í öll verk; moka völlinn, pumpa í bolta og hvað eina. Með landsliðinu gefst meiri tími í að raunverulega þjálfa liðið. „Þetta hefur verið ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel. Ég er góður í að setja upp leiki. Þannig að þetta hentar mér ágætlega, að geta sett upp plan fyrir einstaka leiki… …Þetta er klárlega töluvert öðruvísi. Maður fær góða aðstöðu alltaf og meiri tíma til að setja upp verkefnin, leikgreina og svoleiðis. Svo er allt utanumhald miklu stærra og meira. Ég er með tólf manna starfslið með mér hérna úti, sem er töluvert meira en ég var vanur í félagsliðaboltanum á Íslandi. Það hefur líka verið áskorun, að virkja alla og gefa öllum góð hlutverk, en að sama skapi alveg frábært að geta deilt verkefnum. Það er mjög gott að geta treyst þessu fagfólki sem er með mér, það hefur reynst mjög vel og saman erum við stórkostleg heild.“ Tók tvær með úr Tindastóli Tveir leikmenn í landsliðshópnum, Elísa Bríet Björnsdóttir og Hrafnhildur Salka Pálmadóttir, spiluðu fyrir Tindastól undir stjórn Halldórs í fyrra. Líkt og hann eru þær farnar frá Tindastóli en tengingin er til staðar. „Tveir frábærir leikmenn sem falla mjög vel inn í hópinn, eins og allar þessar stelpur. Þær hafa margar verið lengi saman í yngri landsliðum og þekkjast vel... Stemningin í hópnum er stórkostleg og eftirvæntingin fyrir fyrsta leiknum gríðarleg.“
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn FH - Apollon | Tryggir FH sig áfram? Fótbolti Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman FH - Apollon | Tryggir FH sig áfram? Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Ndiaye til Manchester City Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn