Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar 24. júní 2026 21:30 Aðalkosningamál Viðreisnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk., það mál sem sett er fram sem helstu rök fyrir því að hvetja kjósendur til að segja já við framhaldi viðræðna, er lækkun matvælaverðs. Þetta má ráða af framgöngu forystumanns flokksins, Pawels Bartoszek, á samfélagsmiðlum síðustu vikur. Hann boðar 25% lækkun á ekki bara matvöruverði heldur einnig á verði skyndibita og jafnvel algengum réttum á veitingahúsum. Eins og margir hafa bent á væri ekki flókið fyrir ráðherra flokksins, hvort sem það er Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra eða Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, að leggja fram frumvarp um afnám innflutningstolla á búvörum. Til vara gæti utanríkisráðherrann boðið ESB nýjan samning um bókun 3 við EES-samninginn, þar sem tilboð Íslands væri afnám tolla á búvörur og sjá hvað ESB myndi bjóða í staðinn. Matvælaverð í Finnlandi og Svíþjóð eftir ESB-aðild Pawel hefur víða haldið því fram að matvælaverð geti lækkað um allt að 25% við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í röksemdafærslu fyrir þeirri fullyrðingu er vísað til greinargerðar Hagfræðistofnunar HÍ um áhrif Evrópusambandsaðildar, þar sem bent er á að hlutfallslegt matvælaverð í Finnlandi og Svíþjóð hafi lækkað um 25–30% á fyrsta áratug eftir aðild, en þróast með öðrum hætti á Íslandi og í Noregi. Hér er þó fleira sem liggur undir. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins frá 2003, Íslenskur landbúnaður í alþjóðaumhverfi, segir orðrétt: „Fyrir neytendur þýddi innganga raunlækkun matvælaverðs um 10–11% og frá aðild hefur matvælaverð hækkað mun minna en verðbólga. Á árunum 1995 til 2000 hækkaði verðlagsvísitala neysluvöru um 8% en matvælaverð einungis um 2%.“ Rétt er að geta þess að einn aðalhöfunda skýrslunnar var Martin Eyjólfsson, núverandi ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins. Einnig er rétt að hafa í huga að tollvernd í Finnlandi náði þá til mun fleiri vöruflokka en hún gerir á Íslandi, m.a. til korns og kornvara sem eru tollfrjálsar hér á landi og hafa verið um árabil. Í Svíþjóð var hins vegar ekki um sambærilega fyrsta árs lækkun að ræða. Þar hélst matvöruverð að mestu stöðugt fyrsta árið, en breytingar komu fram síðar og dreifðust yfir lengra tímabil, meðal annars í tengslum við skattkerfisbreytingar og aðlögun markaðar. Þegar horft er á þessar fyrstu tölur einar og sér getur myndin virkað skýr, en hún breytist þegar tekið er tillit til gengisþróunar og lengra tímabils. Konráð Guðjónsson hagfræðingur hefur bent á að stór hluti þessarar breytingar skýrist ekki af ESB-aðildinni sjálfri heldur af gengisþróun á fyrri hluta tíunda áratugarins. Í Svíþjóð hafi sænska krónan til að mynda veikst verulega gagnvart helstu viðmiðunargjaldmiðlum, meðal annars um allt að 20% gagnvart þýska markinu. Slíkar gengisbreytingar hafi bein áhrif á hlutfallslegt verð innfluttra matvæla, óháð aðild að ESB. Sé horft á þróunina yfir lengra tímabil og tekið tillit til almennrar verðbólgu og innlends verðlags verður myndin jafnframt önnur en einföld 25–30% lækkun vegna aðildar. Hér skiptir máli að greina á milli raunverulegra verðáhrifa, gengisbreytinga og almennrar hagþróunar þegar bornar eru saman niðurstöður milli landa. Konráð hefur jafnframt bent á að sé þróun matvælaverðs metin yfir lengra tímabil, til dæmis 20 ár, hafi neytendur á Íslandi notið meiri lækkunar á hlutfallslegu matvælaverði en Finnland og Svíþjóð í kjölfar ESB-aðildar þeirra. Það undirstrikar að langtímaþróun ræðst ekki af einni stefnumótandi breytingu heldur samspili margra þátta. Tollar á innfluttar matvörur á Íslandi Pawel lætur þó ekki staðar numið með yfirlýsingum sem vart verða kallaðar annað en rangfærslur, heldur bætir í þegar kemur að fullyrðingum um tollvernd landbúnaðarvara hér á landi. Hann birti á Facebook-síðu sinni í gær (23. júní sl.) töflu þar sem réttu máli er hallað svo um munar. Þar heldur hann því fram að ekkert innflutt grænmeti sé án tolla og að aðeins hluti kornvara, olía, sykurs og sætinda sé tollfrjáls. Þessi framsetning formanns utanríkismálanefndar er mjög villandi og röng í veigamiklum atriðum. Samkvæmt tollskrá bera margar landbúnaðarvörur tolla samkvæmt almennum viðskiptakjörum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO). Það sem hins vegar skiptir máli í framkvæmd er að Ísland hefur gert umfangsmikla milliríkjasamninga sem breyta þessari mynd verulega. Mikilvægastur þeirra er samningurinn við ESB um aukið gagnkvæmt frelsi í viðskiptum með landbúnaðarvörur á grundvelli bókunar 3 við EES-samninginn, sem tók gildi 1. maí 2018. Samkvæmt honum eru stórir hlutar innflutnings matvæla frá ESB án tolla. Þetta á meðal annars við um langflestar kornvörur, brauð og kex, jurtaolíur, sykur og sætindi, ávexti og stóran hluta grænmetis. Til dæmis eru gúrkur, tómatar og paprika tollfrjáls allt árið, en annað grænmeti sem framleitt er hér á landi nýtur tollfrelsis hluta árs þegar innlend framleiðsla er ekki á markaði. Fullyrðing um að ekkert innflutt grænmeti sé tollfrjálst stenst því einfaldlega ekki. Þegar rætt er um áhrif tolla á matvælaverð skiptir ekki mestu máli hvaða tollar standa í almennri tollskrá heldur hvaða tollar gilda í reynd um þær vörur sem fluttar eru inn og seldar neytendum. Sé horft á þá vöruflokka sem áfram njóta tollverndar gagnvart ESB — svo sem mjólkurvörur, smjör og kartöflur — er hlutfall þeirra í matarkörfunni án drykkjarvara samkvæmt vísitölu neysluverðs tæp 40%, sem samsvarar um 5,4% af heildarútgjöldum heimilanna. Hér er um grófa nálgun að ræða þar sem einstakir undirflokkar innan útgjaldaliða bera ekki endilega sömu tollameðferð. Heimildavinna og gervigreind Það vekur óneitanlega athygli að formaður utanríkismálanefndar greini frá því í athugasemdum við færslu sína að matið á umfangi tollfrelsis hafi verið fengið frá gervigreindinni „Google Gemini“. Þetta er mikilvægt atriði sem eðlilegt hefði verið að kæmi fram í megintexta færslunnar. Gervigreind getur verið gagnlegt hjálpartæki en hún kemur ekki í stað heimildavinnu — sérstaklega ekki þegar fjallað er um flókið samspil tollskrár, fríverslunarsamninga og framkvæmdar þeirra. Í öllu falli þarf að hafa yfirsýn til að geta gagnspurt slík verkfæri og metið hvort niðurstöður þeirra standist. Það verður að gera þá kröfu til formanns utanríkismálanefndar að hann hafi yfirsýn yfir mikilvægasta samning Íslands við ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur áður en hann setur fram afdráttarlausar fullyrðingar um áhrif tolla eða breytinga á þeim, á matvælaverð. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Matvöruverslun Verðlag Mest lesið Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar