Burnham vill taka við af Starmer Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2026 11:48 Andy Burnham var borgarstjóri Stór-Manchestersvæðisins frá 2017 til 2026 og þótti mjög vinsæll borgarstjóri. AP Andy Burnham, þingmaður og fyrrverandi borgarstjóri á Stór-Manchestersvæðinu, hefur tilkynnt að hann sækist eftir því að verða næsti leiðtogi breska Verkamannaflokksins. Sem slíkur myndi hann að óbreyttu taka við sem forsætisráðherra Bretlands.
Burnham tilkynnti þetta á samfélagsmiðlinum X í morgun eftir að Keir Starmer hafði greint frá því að hann myndi hætta sem leiðtogi Verkamannaflokksins og þar með forsætisráðherra. Starmer mun áfram starfa sem forsætisráðherra þar til nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn, líklega í sumarlok. Tilkynning Burnham kemur ekki á óvart og hefur legið í loftinu um tíma. Mikill þrýstingur hefur verið á Starmer síðustu daga og vikur að segja af sér og dró ekki úr þeim þrýstingi þegar Burnham vann þingsæti í aukakosningu á dögunum sem gerði honum kleift að skora Starmer á hólm. Í tilkynningu sinni þakkaði Burnham Starmer fyrir sína leiðtogahæfni og vinnu fyrir land og þjóð. „Ákvörðun hans markar upphafið að leiðtogaskiptum og það er mikilvægt að það ferli einkennist af skipulagi og ábyrgð. Ég býð mig fram,“ sagði Burnham. Burnham var borgarstjóri Stór-Manchester-svæðisins frá 2017 til 2026 og þótti mjög vinsæll borgarstjóri. Starmer hefur gegnt embætti forsætisráðherra Bretlands frá júlí 2024 eftir stórsigur Verkamannaflokksins í þingkosningum. Hann tók við forsætisráðherraembættinu af þáverandi leiðtoga Íhaldsflokksins, Rishi Sunak. Starmer tók við leiðtogaembættinu í breska Verkamannaflokknum af Jeremy Corbyn árið 2020.
Bretland Tengdar fréttir Starmer segir af sér Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr formaður Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. 22. júní 2026 08:38 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ Sjá meira
Starmer segir af sér Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr formaður Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. 22. júní 2026 08:38