Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 21. júní 2026 12:30 Nú eykst spenna landsmanna enda styttist í sumarleyfin, en á meðan landsmenn undirbúa eigin ferðalög hyggst ríkisstjórnin bjóða þjóðinni í aðra pakkaferð, til Brussel, hinn 29. ágúst. Í bæklingnum er ferðin kynnt sem einstakt tækifæri fyrir Íslendinga. Þar er talað um sæti við glæst hlaðborð reglugerða, lægri vexti, aukinn efnahagslegan stöðugleika og bjartari framtíð fyrir íslensk heimili. Það eina sem við þurfum að gera að skrá okkur í ferðina. Segja já í ágúst. Fara af stað, kanna málið og sjá hvað er í boði. Það hljómar auðvitað vel. En eins og með allar pakkaferðir skiptir ekki bara máli hvernig myndirnar líta út í bæklingnum. Það skiptir líka máli að lesa smáa letrið. Hverjir eru skilmálarnir? Hvað er innifalið? Hvað kostar ferðin? Hver ákveður leiðina? Og getum við snúið við ef okkur líst ekki á hvert ferðinni er heitið? Er afbókunargjald? Líkt og með aðrar pakkaferðir sem ferðaskrifstofur keppast við að selja ferðaþyrstum einstaklingum, er þessi pakkaferð heldur ekki óvissuferð. Við vitum hvert hún leiðir. Aðild að Evrópusambandinu er ekki óþekktur áfangastaður. Hún er ekki leyndardómur sem kemur fyrst í ljós þegar við lendum í Brussel. Við vitum alveg hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu þýðir fyrir Ísland, íslenskar auðlindir og stjórnskipan. Við þurfum ekki að kíkja í pakkann til að vita hvað felst í aðild. Regluverk, stofnanir, valdheimildir, dómsvald og forgangsreglur Evrópusambandsins liggja fyrir. Áður en við kaupum pakkaferðina verðum við því að staldra við og lesa smáa letrið. Auðvitað á þjóðin að kjósa um aðildarviðræður að Evrópusambandinu en þá þurfum við að geta átt hreinskiptar og upplýstar samræður um þennan Evrópupakka. Í honum leynist nefnilega ekkert nýtt. Eins og margt ungt fólk var ég líka spennt fyrir Evrópusambandinu. Mér fannst í það minnsta óþarfi að slá aðild Íslands út af borðinu, en eftir grunnkúrs í Evrópurétti í lagadeild snerist hugur minn um aðild Íslands að Evrópusambandinu fljótt við. Ég komst að því að atkvæðavægi okkar væri nær ekkert. Ísland fengi innan við 1% þingsæta á Evrópuþinginu. Þetta sæti við borðið sem Evrópusinnar tönglast stöðugt á er ekki mikið meira en bara sæti við borð eða svo við höldum okkur við myndlíkinguna, þá myndum við vissulega fá sæti í rútunni í pakkaferðinni, en það þýðir ekki að við ráðum för. Við getum setið í. Við getum horft út um gluggann. Við getum jafnvel rétt upp hönd og sagt hvað okkur finnst. En ef að farastjórarnir hafa ákveðið hvert á að fara, þá skiptir sæti okkar í rútunni takmörkuðu máli. Í því felst engin trygging fyrir hagsmunum Íslands. Hvaða líkur eru á að stórar þjóðir taki sérstaklega tillit til hagsmuna smáþjóða eins og Íslands? Nýjustu tíðindi um tolla Evrópusambandsins á Ísland er kannski einmitt dæmi um það þegar hagsmunir smáþjóðar eru látnir víkja. Þrátt fyrir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og baráttu ráðamanna gegn tollunum. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, EES, hefur þó verið farsælt skref fyrir Ísland. Samningurinn er mikilvægasti viðskiptasamningur sem Ísland hefur gert og veitt fyrirtækjum á Íslandi aðgang að evrópskum markaði og Íslendingum tækifæri til að starfa og læra um alla Evrópu. En ólíkt því sem aðild að Evrópusambandinu felur í sér er þá ákveðum við hvað við tökum í upp í gegnum EES samninginn og þannig geta stjórnvöld tryggt að íslenskir hagsmunir ráði för. Það er því ekki þannig að við höfum ekkert um það að segja hvaða reglugerðir eru innleiddar. Við getum hafnað þeim og það neitunarvald er miklu áhrifaríkara sæti en það atkvæða litla sem aðild að Evrópusambandinu fæli í sér. Lega landsins, fámenni þjóðarinnar, dreifbýli, miklar náttúruauðlindir og fjarlægð frá meginlandi Evrópu sýnir líka hversu ólíkra hagsmuna við höfum að gæta. Það er eitthvað skakkt við þá tilhugsun að Íslandi og íslenskum auðlindum sé stjórnað úr 2000 km fjarlægð. Við eigum auðvitað að eiga í nánu samstarfi við Evrópu. Við eigum að eiga viðskipti við Evrópu. Við eigum að læra af því sem vel er gert í öðrum ríkjum. En það er munur á því að eiga gott samstarf við nágranna sína og leyfa þeim að ráðstafa sumarfríinu sínu. Höfundur er ung kona sem telur hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins og fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar