Golf

Skemmdi búnings­klefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Wyndham Clark hefur ástæðu til að brosa eftir byrjun sína á Opna bandaríska risamótinu í ár.
Wyndham Clark hefur ástæðu til að brosa eftir byrjun sína á Opna bandaríska risamótinu í ár. Getty/Warren Little

Wyndham Clark sló met á Shinnecock-golfvellinum þegar hann kláraði fyrstu 36 holurnar á Opna bandaríska risamótinu í ár á sjö höggum undir pari.

Clark fylgdi eftir stórbrotinni spilamennsku á fyrsta hring þar sem hann kom inn á 64 höggum, eða sex höggum undir pari, með því að spila á 69 höggum í dag, eða einu höggi undir pari.

Hann sló þar með 36 holu skormetið fyrir Opna bandaríska á Shinnecock-vellinum. Sjö undir pari eftir tvo daga.

„Mér fannst ég virkilega geta verið á tveggja stafa tölu undir pari, en það frábæra við þetta er að mér fannst ég ekki vera upp á mitt besta og samt er ég með forystu eins og staðan er núna,“ sagði Clark. „Vonandi get ég sýnt mitt besta um helgina.“

Hann vann þetta sama mót fyrir þremur árum.

Árið 2023 var Clark ekki með forystu fyrr en á laugardag fyrir lokahringinn. Þann dag lék hann á pari og hélt aftur af kylfingum á borð við Rory McIlroy, Scottie Scheffler, Cam Smith og Tommy Fleetwood og tryggði sér sinn fyrsta risatitil.

Titilvörn Clarks á Opna bandaríska á Oakmont í fyrra fór úrskeiðis þegar hann lék á átta höggum yfir pari á tveimur dögum og fékk skolla á lokaholunni og missti af niðurskurðinum um eitt högg.

Clark skemmdi síðan búningsklefann í klúbbhúsinu og var í kjölfarið bannaður af klúbbnum. Mánuði fyrir Opna bandaríska baðst Clark einnig afsökunar á því að hafa kastað drævernum sínum á PGA-meistaramótinu eftir misheppnað upphafshögg.

Á föstudag var Clark spurður út í atvikið og hvort honum fyndist að ímynd hans hefði breyst meðal aðdáenda á síðasta ári vegna þess sem gerðist.

Ég hef fengið mikla gagnrýni

„Ég hef fengið mikla gagnrýni síðan í fyrra, og það með réttu. Það sem er óheppilegt er að það sem gerðist í fyrra er ekki lýsandi fyrir mig,“ sagði Clark. „Ég vonast til að geta unnið aftur þá aðdáendur sem ég hafði, eða fengið nýja, því þetta var hræðilegt atvik.“

Clark, sem hefur áður talað opinskátt um baráttu sína við andlega heilsu og samstarf sitt við sálfræðiþjálfarann Julie Elion, sagði á föstudag að andlega hliðin hjá honum „færi upp og niður“ og líkti því við hvernig golfleikur hans getur sveiflast.

Brotið og bramlað í búningsklefa

„Ég var á toppi heimsins, að minnsta kosti í mínum leik, þegar ég vann Opna bandaríska og átti svo nokkur góð ár. Svo næst veit maður af því að maður er að biðjast afsökunar á að hafa brotið og bramlað í búningsklefa ári síðar,“ sagði Clark.

„Ef maður hugsar um þetta eins og að klífa Everest þá fer maður upp en stundum þarf maður að fara niður til að komast aftur upp. Ég held að það sé nokkurn veginn það sem gerist bæði á golfvellinum og utan hans. Núna er ég á uppleið aftur, sem er ánægjulegt,“ sagði Clark.

Hann er með fjögurra högga forskot þegar þetta er skrifað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×