Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 15:32 Freyr Alexandersson var ekki lengi að finna nýtt starf og það hjá sigursælasta liði Noregs. Getty/Alessandro Sabattini Freyr Alexandersson segir brottreksturinn frá Brann hafa komið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ákvörðunin hafi verið tekin af „fáum en valdamiklum mönnum“.
Freyr sat fyrir svörum á blaðamannafundi í Þrándheimi í dag þar sem hann var kynntur til leiks sem nýr þjálfari Rosenborgar, aðeins 19 dögum eftir óvæntan brottrekstur frá Brann. Freyr tekur við Rosenborg í fallsæti í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta og á því ærið verkefni fyrir höndum við að reisa þetta sigursælasta lið landsins úr öskustónni. Það er hann hins vegar staðráðinn í að gera. „Ég stend hér fyrir framan ykkur og er gríðarlega stoltur af því að vera hér á Lerkendal sem aðalþjálfari Rosenborg,“ sagði Freyr samkvæmt frétt TV 2. Freyr skildi við Brann í 11. sæti með 13 stig, fjórum stigum fyrir ofan Rosenborg. Brann var grátlega nálægt því að verða norskur bikarmeistari í vor og komst sömuleiðis áfram úr deildarkeppni Evrópudeildarinnar í vetur og í umspil þar sem liðið féll út gegn Bologna frá Ítalíu. Hlutirnir voru því afar fljótir að fara til verri vegar og þolinmæði forráðamanna Brann greinilega ekki mikil. „Fyrstu dagana var ég vonsvikinn og dapur“ „Þetta er sérstakt. Það var ekki í áætlunum mínum að yfirgefa Bergen, en svo gerist það sem gerist. Fyrstu dagana var ég vonsvikinn og dapur, en svo get ég sagt ykkur að íbúar Bergen hvöttu mig til að fara aftur af stað eins fljótt og auðið er,“ sagði Freyr sem má eflaust ekki segja mikið um viðskilnaðinn við Brann vegna samnings um starfslokin. „Það er ástæða fyrir því að ég segi ekkert um það. Það sem ég get sagt er að það voru mjög fáir valdamiklir einstaklingar sem fannst þetta góð hugmynd. Ég verð bara að sætta mig við það.“ Aðspurður hvort að um valdabaráttu hefði verið að ræða svaraði Freyr: „Nei, þetta er engin valdabarátta. Það voru engar umræður, ekkert mat. Það eru stjórnin og stjórnendurnir sem höfðu vald til að reka þjálfarann. Það er þeirra ákvörðun. Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég hef ekkert meira um það að segja.“
Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Sjá meira