Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 13:47 Hakimi er lykilmaður í liði Marokkó sem ætlar sér langt á HM í Ameríku. Getty/Dan Mullan Achraf Hakimi, fyrirliði Marokkó í fótbolta og leikmaður PSG í Frakklandi, verður dreginn fyrir dóm vegna nauðgunar en þetta staðfestu franskir saksóknarar í dag.
Hakimi er með marokkóska landsliðinu á HM þar sem liðið gerði 1-1 jafntefli við Brasilíu í fyrsta leik og mætir Skotlandi í kvöld, í C-riðli. Þessi 27 ára fótboltamaður, sem varð Evrópumeistari með PSG annað árið í röð í vor, gæti átt yfir höfði sér dóm en hann er sakaður um að hafa nauðgað konu í París árið 2023, þegar hann var 24 ára gamall. Rannsóknardómari fyrirskipaði réttarhöld í febrúar á þessu ári og segja franskir fjölmiðlar frá því að áfrýjun Hakimi hafi ekki skilað árangri. Hakimi hefur frá upphafi neitað sök og hann gerði það einnig í færslu á samfélagsmiðlum í dag. „Dómskerfið horfðist í augu við mig og sagði: „Ef þú værir ekki frægur hefði aldrei orðið neitt mál úr þessu.“ Ég kaus að þegja í mörg ár. Ég trúði því að með því að halda í reisn mína, vera þolinmóður og treysta dómskerfinu yrðu réttar ákvarðanir teknar. Í dag er sögð saga sem er ekki mín, á kostnað fjölskyldu minnar, lífs míns og umfram allt sannleikans. Mér finnst stundum eins og ég sé orðinn auðvelt skotmark. Ég hef beðið eftir þessum réttarhöldum frá fyrsta degi. Og nú bíð ég þeirra spenntur. Loksins mun ég geta tjáð mig,“ sagði Hakimi.
HM 2026 í fótbolta Franski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira