Vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig Ágúst Valves Jóhannesson skrifar 15. júní 2026 08:30 Þangað til rétt fyrir lokaafgreiðslu á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu nú í lok maí hélt ríkisstjórnin eftir gögnum sem einungis þingmenn gátu fengið að sjá í læstu leyniherbergi í húsnæði Alþingis. Þessi sama ríkisstjórn hefur lýst því yfir að nauðsynlegt sé að fara aftur í þá klofningsferð eins og árið 2009 þegar sótt var síðast um aðild að ESB, svona til að kíkja. Hvers vegna eru kjósendur því ekki upplýstir um stöðuna eins og hún var og hvernig hún er, því slíkar upplýsingar gætu haft áhrif á hug þeirra til mögulegra aðildarviðræðna. Til þess að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun þarf hún að fá að vita allar staðreyndir málsins. Ríkisstjórnin heldur nauðsynlegum upplýsingum frá þjóðinni. Það er ástæða til þess að spyrja hvers vegna er ekki allt haft uppi á borðum? Til hvers er þessi leyndarhyggja? Hverju er verið að halda frá okkur? Það er augljóst að leikplan aðildarsinna, jafnvel grjóthörðustu ESB-sinnanna hefur breyst. Nú er ekki vilji til inngöngu, eingöngu á að kíkja í pakkann. Pakki sem er jafn augljós og mótorhjólið í Jólahjóli Sniglabandsins. Evrópuhreyfingin og vellauðugir aðildarsinnar hafa kostað stórar skoðanakannanir þar sem fólk hefur verið spurt um afstöðu til aðildar að ESB en á sama tíma heldur þetta sama fólk fram að ekki er hægt að taka afstöðu án samnings. Ljóst er að taktíkin er til þess fallin að blekkja þjóðina til þess að kíkja í vel skreyttan jólahjólspakkann en afstaða þessa sama fólks hefur aldrei breyst. Ríkisstjórn Íslands ásamt þeirra stuðningsfólki fer fram með upplýsingaóreiðu til þess að blekkja þjóðina til liðs við sig. Það er ekki vilji stjórnvalda og aðildarsinna að upplýsa um neitt, heldur einungis að ná fyrsta skrefinu: Að hefja aðildarviðræður, þó svo sigurinn komi með ljótum og óheiðarlegum hætti. Vel upplýst þjóð segir NEI við upplýsingaóreiðu og blekkingum og vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig. Höfundur er stjórnmálafræðingur og starfar sem sjómaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Þangað til rétt fyrir lokaafgreiðslu á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu nú í lok maí hélt ríkisstjórnin eftir gögnum sem einungis þingmenn gátu fengið að sjá í læstu leyniherbergi í húsnæði Alþingis. Þessi sama ríkisstjórn hefur lýst því yfir að nauðsynlegt sé að fara aftur í þá klofningsferð eins og árið 2009 þegar sótt var síðast um aðild að ESB, svona til að kíkja. Hvers vegna eru kjósendur því ekki upplýstir um stöðuna eins og hún var og hvernig hún er, því slíkar upplýsingar gætu haft áhrif á hug þeirra til mögulegra aðildarviðræðna. Til þess að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun þarf hún að fá að vita allar staðreyndir málsins. Ríkisstjórnin heldur nauðsynlegum upplýsingum frá þjóðinni. Það er ástæða til þess að spyrja hvers vegna er ekki allt haft uppi á borðum? Til hvers er þessi leyndarhyggja? Hverju er verið að halda frá okkur? Það er augljóst að leikplan aðildarsinna, jafnvel grjóthörðustu ESB-sinnanna hefur breyst. Nú er ekki vilji til inngöngu, eingöngu á að kíkja í pakkann. Pakki sem er jafn augljós og mótorhjólið í Jólahjóli Sniglabandsins. Evrópuhreyfingin og vellauðugir aðildarsinnar hafa kostað stórar skoðanakannanir þar sem fólk hefur verið spurt um afstöðu til aðildar að ESB en á sama tíma heldur þetta sama fólk fram að ekki er hægt að taka afstöðu án samnings. Ljóst er að taktíkin er til þess fallin að blekkja þjóðina til þess að kíkja í vel skreyttan jólahjólspakkann en afstaða þessa sama fólks hefur aldrei breyst. Ríkisstjórn Íslands ásamt þeirra stuðningsfólki fer fram með upplýsingaóreiðu til þess að blekkja þjóðina til liðs við sig. Það er ekki vilji stjórnvalda og aðildarsinna að upplýsa um neitt, heldur einungis að ná fyrsta skrefinu: Að hefja aðildarviðræður, þó svo sigurinn komi með ljótum og óheiðarlegum hætti. Vel upplýst þjóð segir NEI við upplýsingaóreiðu og blekkingum og vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig. Höfundur er stjórnmálafræðingur og starfar sem sjómaður.
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar