ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þorsteinn Hjálmsson skrifar 12. júní 2026 22:11 Víkingar héldu sigurgöngu sinni áfram á Akranesi í kvöld og hafa nú unnið ellefu leiki í röð í öllum keppnum. Vísir/Diego Víkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta og fylgja þangað Blikum og Mosfellingum sem unnu líka leiki sína í átta liða úrslitum. Víkingur vann 2-1 útisigur á ÍA uppi á Akranesi í kvöld. Þeir eru komnir í undanúrslit bikarkeppninnar í fimmta sinn á síðustu sex sumrum. Þetta var líka ellefti sigur Víkinga í röð í deild (9) og bikar (2). Fyrra markið skoraði Óskar Borgþórsson en hann hefur farið á kostum í sumar og er kominn með níu mörk í deild og bikar á þessu tímabili. Markið mikilvæga í dag skoraði Óskar á 59. mínútu eftir sendingu frá Valdimari Þór Ingimundarsyni. Aron Elís Þrándarson, þá nýkominn inn á völlinn sem varamaður, bætti við öðru marki á 74. mínútu þegar hann skallaði inn frábæra fyrirgjöf Helga Guðjónssonar. Markús Páll Ellertsson minnkaði muninn en ekki fyrr en á fjórðu mínútu í up,uppbótartímaem var bara of seint. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Mjólkurbikar karla ÍA Víkingur Reykjavík