Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2026 07:01 Brito er hér við hlið fyrirliðans Carlos Alberto, annar frá vinstri í efri röð í þessu frábæra liði sem vann heimsmeistaramótið 1970. Getty/ Mirrorpix Brasilíumenn misstu eina af hetjunum úr að margra mati besta fótboltalandsliði sögunnar og það aðeins nokkrum dögum fyrir fyrsta leik brasilíska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Árið 1970 varð Brito heimsmeistari í fótbolta með Brasilíu. Hann lést á fimmtudagskvöld, 86 ára að aldri. Þetta tilkynnti brasilíska knattspyrnusambandið án þess að tilgreina dánarorsök. Brito hét fullu nafni Hércules de Brito Ruas. „Brito gaf okkur einn af bestu varnarmönnum Brasilíu. Framlag hans til HM-gullsins árið 1970 mun að eilífu verða í minnum haft. Látum keppnisanda hans vera okkur öllum innblástur,“ segir í yfirlýsingu frá Samir Xaud, forseta brasilíska knattspyrnusambandsins. Morre Brito, zagueiro titular da Seleção na Copa de 70 ➡️ https://t.co/3HbgdoHfnr📷 AE e Arquivo Pessoal pic.twitter.com/sFDQ0taAV6— ge (@geglobo) June 12, 2026 Brasilíska landsliðið frá HM 1970 var með Pele í farabroddi og vann alla leiki sína á mótinu, þar á meðal 4-1 sigur á Ítalíu í úrslitaleiknum í Mexíkóborg. Ásamt Piazza myndaði Brito hið fræga miðvarðapar á HM í Mexíkó. Þar sem Piazza var þekktur sem framúrskarandi tæknimaður var Brito sá sem lagði til líkamlegan styrk og kraft. Brito lék alls 45 landsleiki fyrir Brasilíu frá 1964 til 1972 en hann spilaði stærstan hluta ferils síns með Vasco da Gama. Á HM í ár mun Brasilía mæta Marokkó aðfaranótt sunnudags. Leikurinn hefst á miðnætti. View this post on Instagram A post shared by UOL Esporte (@uolesporte)
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Sjá meira