Fótbolti

Messi sló ellimet gegn Ís­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Lionel Messi er orðinn 38 ára en í fínu formi eins og sjá mátti eftir að hann hafði gefið Jóni Degi Þorsteinssyni treyjuna sína.
Lionel Messi er orðinn 38 ára en í fínu formi eins og sjá mátti eftir að hann hafði gefið Jóni Degi Þorsteinssyni treyjuna sína. Getty/Gustavo Pagano

Töframaðurinn Lionel Messi sló enn eitt metið á sínum ferli þegar hann skoraði gegn Íslandi í vináttulandsleiknum með Argentínu í nótt.

Messi kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik og var ekki nema um hálfa mínútu að stinga boltanum inn á Lautaro Martínez með frábærri sendingu. Martínez skoraði ekki en fékk vítaspyrnu sem Messi skoraði svo úr, annað mark Argentínu í 3-0 sigri.

Markið gerir Messi að elsta markaskorara í sögu argentínska landsliðsins, samkvæmt grein ESPN. 

Hann skoraði markið 38 ára gamall, 11 mánaða og 14 daga gamall, og bætti þar með met Ángel Labruna sem var 38 ára, 9 mánaða og 8 daga þegar hann skoraði sitt síðasta mark fyrir Argentínu. Landsliðsferli Labruna lauk árið 1958, eða fyrir 68 árum síðan.

Fimm elstu markaskorarar í sögu Argentínu eru þar með þessir:

  1. Lionel Messi - 38 ára, 11 mánaða og 14 daga
  2. Ángel Labruna - 38 ára, 9 mánaða og 8 daga
  3. Nicolás Otamendi - 38 ára, 1 mánaðar og 20 daga
  4. Martín Palermo - 36 ára, 7 mánaða og 15 daga
  5. Ángel Di María - 36 ára, 3 mánaða og 27 daga

Tengdar fréttir

Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi?

Landsliðin okkar spiluðu bæði við heimsmeistara í gær og máttu sín lítils. Frammistaða stelpnanna okkar olli vonbrigðum. Strákarnir gerðu nákvæmlega sömu mistök og síðasta leik.

Endurfundir Messi og Guðjohnsen

Eftir leik Íslands og Argentínu í gærkvöldi fór Daníel Tristan Guðjohnsen og spjallaði við Lionel Messi. Pabbi Daníel Tristans, Eiður Smari Guðjohnsen, er gamall liðsfélagi Messi.

Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs

Ísland tapaði 3-0 fyrir ríkjandi heimsmeisturum Argentínu í allsherjar Lionel Messi-messu í Alabama í Bandaríkjunum fyrir framan 88 þúsund manns í nótt. Margt jákvætt má taka úr leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×