Formúla 1

Segir styttast í fyrsta sigurinn

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton segir að það styttist í fyrsta sigur hans hjá Ferrari
Lewis Hamilton segir að það styttist í fyrsta sigur hans hjá Ferrari Quinn Rooney/Getty Images

Lewis Hamilton finnur að fyrsti sigur hans með Ferrari er að nálgast. Sjöfaldi heimsmeistarinn er kominn í annað sæti í heimsmeistaramóti ökuþóra í Formúlu 1 eftir góða frammistöðu í síðustu keppnum.

Lewis Hamilton gekk til liðs við Ferrari á síðasta ári en gengið hjá liðinu var ekki gott fyrsta árið. Í ár er staðan öðruvísi og eftir að hafa verið á verðlaunapalli í fyrsta skiptið með Ferrari í Kína hefur hann náð góðum stigum og situr nú í öðru sæti heimsmeistaramótsins.

Ungstirnið Kimi Antonelli er í fyrsta sæti heimsmeistaramótsins en hann fékk sætið hans Hamilton þegar hann fór til Ferrari. Hamilton finnst ótrúlegt að hann sé sem stendur í öðru sæti heimsmeistaramótsins. Þrátt fyrir að Hamilton sé 66 stigum á eftir Antonelli ætlar hann að reyna eins og hann getur að sækja áttunda heimsmeistaratitilinn sinn.

Síðasta keppnin í Formúlu 1 var í Mónakó og endaði með áhugaverðum verðlaunapalli. Hamilton er eldri en báðir hinir ökumennirnir samanlagt. Hamilton er 41 árs á meðan Kimi Antonelli er 19 ára og Isack Hadjar sem var með þeim á verðlaunapalli er 21 árs. Aldur Antonelli og Hadjar er því samtals 40. Eftir keppnina sagðist Hamilton vera stoltur af því að deila verðlaunapalli með ungu ökuþórunum og geta haldið í við þá.

Liðsfélagi Hamilton hjá Ferrari, Charles Leclerc, hefur ekki átt jafn góðu gengi að fagna í ár. Hann er sem stendur í fjórða sæti heimsmeistaramótsins en hefur ekki fundið sig jafn vel í Ferrari bílnum í ár og Hamilton. Þrátt fyrir það var hann að skrifa undir langan samning við Ferrari liðið sem gefur í skyn að hann treysti vegferð liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×