Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar 10. júní 2026 08:17 Tvö umdeild frumvörp liggja fyrir Alþingi sem snúa að því að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna annað er um Stofnun atvinnuveganna og hitt um einföldun regluverks og aukin skilvirkni með eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum. Það er ekkert í þessum frumvörpum sem tryggir að störf heilbrigðisfulltrúa haldist á landsbyggðinni hringinn í kringum Ísland. Rörsýn ráðamanna má ekki bitna á öryggi almennings og þeirra sem minnst mega sín. Íslenskt kerfi þróað út frá íslenskum veruleika Íslenskt heilbrigðiseftirlit hefur þróast út frá íslenskum veruleika: fámenni, víðfermi og dreifðum byggðum. Þetta eru krefjandi aðstæður og það skiptir öllu máli að eftirlit sé í nærumhverfinu, nálægt bæði íbúum og rekstraraðilum. Staðbundin þekking tryggir hröð og örugg viðbrögð Staðbundin þekking tryggir að hægt sé að bregðast hratt og örugglega við þegar á reynir. Þess vegna er varhugavert að slíta kerfið í sundur og færa í miðlægt kerfi í nafni einföldunar. Heilbrigðiseftirlit snýst um meira en reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlit snýst um meira en reglubundið eftirlit með starfsleyfisskyldri starfsemi. Það snýst einnig um að bregðast við kvörtunum og ábendingum frá almenningi og rekstraraðilum og eru þær af ýmsum toga. Sum mál eru auðleyst en önnur flókin og viðkvæm. Árlega berast heilbrigðiseftirlitinu kvartanir sem skipta þúsundum. Mikilvægt er að til sé traustur og skýr farvegur þar sem almenningur og rekstraraðilar geta komið kvörtunum og ábendingum til skila. Engin er betur til þess fallin að leysa úr þessum málum en heilbrigðisfulltrúi sem þekkir staðhætti og getur mætt á vettvang með litlum fyrirvara. Nálægð og traust tryggir öryggi fólks í viðkvæmri stöðu Þá leiðbeinir Heilbrigðiseftirlitið ekki eingöngu fyrirtækjum og almennum neytendum, heldur einnig fólki í viðkvæmri stöðu. Til dæmis þegar húsnæði er óíbúðarhæft eða þar sem aðstæður ógna heilsu og öryggi. Hér skiptir miklu að starfsfólk sé með staðbundna þekkingu og í traustum tengslum við sveitarstjórnarstigið, en heilbrigðiseftirlitið er einnig mikilvægur farvegur sem tryggir að almenningur og rekstraraðilar hafi aðgang að faglegri þjónustu, hlustun og úrlausn. Mikilvægt er að átta sig á að þjónusta heilbrigðiseftirlitsins byggir á nálægð, staðbundinni þekkingu og trausti. Ef kerfið verður fært fjær, getur það orðið óaðgengilegt þeim sem mest þurfa á þjónustunni að halda. Því er lykilatriði að tryggja að heilbrigðiseftirlit verði áfram í nærsamfélaginu, okkur öllum til hagsbóta. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík og formaður Félags heilbrigðisfulltrúa á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Skoðun Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Sjá meira