Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. júní 2026 14:01 Halla og Skjöldur leggja áherslu á liti, glimmer og gleði í snyrtivörunum sínum. „Af því að við finnum það að fólk er orðið smá þyrst í gleði og liti og skraut.“ Ísland í dag Förðunarfræðingarnir Halla Þórarinsdóttir og Skjöldur Eyfjörð ætla sér stóra hluti á íslenskum snyrtivörumarkaði og fara brátt af stað með eigið merki, Just Makeup. Halla og Skjöldur voru viðmælendur Sindra Sindrasonar í nýjasta þætti af Íslandi í dag.
Ellý Ármannsdóttir, flugfreyja og spákona, spáði fyrir Höllu og sagði eitthvað spennandi vera í vændum. Hún sagði Höllu eiga von á símtali erlendis frá og samstarfi við karlmann. Halla var ekki vongóð um samstarfið fyrst um sinn. „Þú veist ég er ekki að fara að vera með förðunarnámskeið í samstarfi við karlmann. Það bara er ekki að fara að gerast,“ segir hún. Skjöldur hafði verið að vinna í hugmyndinni að Just Makeup í Noregi áður en Halla kom að borðinu. Bæði hafa þau verið að halda förðunarnámskeið, Skjöldur í Noregi og Halla á Íslandi. Skjöldur ákvað að mæta á námskeið hjá Höllu með vörurnar og þá var ekki aftur snúið. „[Ég] sé vörurnar og þá er bara eins og eitthvað hafi svona smollið saman. Þetta er fullkomið, þetta er vara sem mig langar að koma með á íslenskan markað til allra kvennanna sem ég er með á námskeiðinu,“ segir Halla. Í spilaranum hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni: Þau vinna að merkinu hvort í sínu landinu, Halla á Íslandi en Skjöldur frá Noregi, en segjast vera mjög samstíga í öllum ákvörðunum. „Það sem er búið að vera svolítið skemmtilegt og fallegt við okkar samstarf er að við höfum verið alveg ofboðslega sammála í öllum grunninum,“ segir Skjöldur. Aðspurð hvað geri Just Makeup-vörurnar betri en aðrar á markaði segja þau vörurnar sínar blandast vel og auðveldar í notkun. Þau segjast koma með nýjungar inn á íslenskan markað og leggja áherslu á liti, glimmer og gleði. „Af því að við finnum það að fólk er orðið smá þyrst í gleði og liti og skraut. Það er búið að vera svo flatt svolítið lengi,“ segir Halla. Maskari, kinnalitur, augnblýantar og glossar eru meðal vara Just MakeupÍsland í dag Förðunarfræðingarnir tveir eru hins vegar ekki á einu máli hvað varðar markmið merkisins. Skjöldur segir þau hafa unnið að því að allar formúlur varanna þeirra séu góðar „Þannig þú þarft bara eitt merki. “ Halla segir ekki eitt merki geta hentað öllum. „Af því að við erum öll svo mismunandi. Þetta meik hentar ekki fyrir þessa húð og hitt meikið hentar ekki fyrir hina. Þú fílar svona gloss og ég fíla hinsegin. Þú veist, það er ekki hægt að gera öllum til geðs með einhverju Halla segist hafa prófað vörurnar á námskeiðunum sínum á konum frá 17 ára að aldri til 82 ára og segir mikla eftirvæntingu og spenning meðal kvennanna. Henni kom á óvart hvað vörurnar, sér í lagi þær litríku og glimmeruðu, vöktu mikla lukku meðal miðaldra kvenna. „Uppáhaldsorðið mitt í dag er að þora. Og mér finnst við þurfum svolítið að þora meira, fara aðeins út fyrir boxið okkar, út fyrir rammann og þora,“ segir hún.
Hár og förðun Ísland í dag Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Fleiri fréttir Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Sjá meira