Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar 9. júní 2026 08:46 Fyrir þá sem vilja trúa því að flóttafólk eigi ekki skilið vernd og nýtt tækifæri til að lifa með reisn lítur frumvarpið vel út á blaði. En þegar það er lesið með nákvæmni, þegar við lítum á hvað er í raun lagt til, þá er þetta ekki leiðin til að stjórna „ástandi“. Þetta er feluleikur. Og það versta er að börn greiða verðið. Ísland hefur lengi verið þekkt fyrir það að vera friðsöm þjóð sem stendur vörð um jafnrétti og mannréttindi. Núna nýlega var þjóðin stolt af því að hafna þátttöku í Eurovision vegna þess að þjóðin gat ekki horft upp á mannréttindabrot Ísraelamanna gegn Palestínumönnum og sérstaklega börnum. Samkvæmt Barnaheill hefur að minnsta kosti eitt palestínskt barn verið drepið að meðaltali á klukkustund af ísraelskum hermönnum á Gaza síðan í upphafi stríðsins og fjöldi drepinna barna er nú kominn yfir 20.000. En á sama tíma og við erum ánægð með að standa vörð um sýndarmennskugjörninga á borð við að eyða ekki fjármagni í Eurovision í ár, leggur dómsmálaráðherra fram frumvarp sem myndi heimila yfirvöldum að setja flóttabörn í lokaðar stofnanir, frumvarp sem Evrópuráðið gagnrýndi opinberlega í febrúar 2026. Sama fólk sem er ánægt með að taka afstöðu gegn hörmungum sem ganga yfir börn í Úkraínu og Palestínu er reiðubúið að leyfa íslenskum stjórnvöldum að læsa börn á flótta inni í sérstaka varðhaldsstofnun. Það að vera á flótta, að flýja eigið land vegna þess að það snýst um líf og dauða, er ólíkt eitthvað sem við getum einu sinni skilið hér í forréttindaparadísinni okkar. En við verðum að tala um þetta. Börn í búrum: hvað frumvarpið leggur í raun til Frumvarpið leggur til að koma á fót svokallaðri brottfararmiðstöð en nafnið á ekki að villa um fyrir okkur. Samkvæmt því mætti halda börnum sem koma með foreldri eða forsjáraðila í lokuðum aðstæðum í allt að þrjá daga í senn og allt að níu daga samtals. Fullorðnir gætu verið haldnir þar í allt að átta vikur. Níu dagar hljóma skammur tími en fyrir barn er það nógu lengi til að koma því í alvarlegt áfall. Mikilvægt er að muna að það að vera á flótta er ekki ólöglegt, það er ekki glæpur sem krefst þess að manneskja sé læst í varðhaldsstöðu. Við eigum fangelsi og betur væri varið pening í að bæta og aðlaga fangelsiðkerfi til að geta sett þá sem eru hættulegir eða hafa framið brot á okkar lögum, óháð uppruna, í viðeigandi úrræði innan þessa kerfis. Í febrúar 2026 hvatti mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, Michael O'Flaherty, Alþingi til að breyta frumvarpinu þannig að börn yrðu aldrei sett í varðhald á grundvelli stöðu sinnar sem flóttafólk. Vandinn er sá að jafnvel þótt frumvarpið kalli þetta síðasta úrræði krefst það ekki að yfirvöld sýni fram á í hverju einstaka tilviki að ekkert mildara úrræði sé mögulegt. Ábyrgðin er formleg en í raun tóm. Staðreyndar ekki ógn til að stjórna okkar viðhorfi um flóttafólk Rannsóknir eru ótvíræðar, varðhald sem slíkt skaðar börn. Þetta er ekki pólitískur ágreiningur. Þetta er vísindaleg niðurstaða. Kerfisbundin yfirlit yfir 21 rannsókn, sem náði yfir 9.620 börn, sýna að 42% barna í flóttamannavarðhaldi þróa einkenni þunglyndis og 32% þróa einkenni áfallastreituröskunar (PTSD). Og þetta er lykilatriðið: enginn lágmarkstími er öruggur. Jafnvel stutt dvöl er tengd skaðlegum áhrifum á geðheilbrigði. Yngri börn sýna þroskahömlun og hegðunarvandamál. Eldri börn þjást af þunglyndi, kvíða og PTSD. Mörg þessara barna bera þegar á sér þungann af stríði, ofsóknum og hættulegum ferðum. Varðhald hlé ekki á þeim sársauka – það margfaldar hann. Hvað erum við í rauninni að heimila? Þetta frumvarp er ekki bara skaðlegt fyrir börn. Það setur upp kerfi þar sem eftirlit er nánast ekki til, og þar sem valdið til að skilgreina hvað er lögmætt er lagt í hendur þeirra sömu stofnana sem stjórna varðhaldinu. Samkvæmt frumvarpinu er það ríkislögreglustjóri sem ákveður hvort fangar megi veita viðtal til fjölmiðla og slík viðtöl yrðu ekki leyfð ef þau eru andstæð almannahagsmunum. Sami aðilinn sem rekur stofnunina fær að ákveða hvort fólk megi tala um hvað gerist þar inni. Þetta er ekki gagnsæi. Þetta er þöggun. Frumvarpið heimilar starfsmönnum að beita valdi ef talið er nauðsynlegt, þar á meðal líkamlegum heftingum. Þess er ekki krafist að þetta vald sé skilgreint, takmarkað eða eftirliti háð af óháðum aðila. Þetta á við í stofnun þar sem mörg börnin hafa þegar upplifað ofbeldi. Við vitum af sögunni, frá lokuðum stofnunum víðs vegar, hvað gerist þegar eftirlit vantar og aðgangur fjölmiðla er bannaður: misnotkun blómstrar, þolendur kvarta og ekkert heyrist („out of sight out of mind“). Þeir sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu, pyntingarbrot, kynferðisofbeldisþolendur, barnshafandi konur og þeir sem þjást af geðsjúkdómum, fá ekki sérstaka vernd innan þessarar nýju stofnunar, samkvæmt þessu frumvarpi. Enginn sjálfstæður eftirlitsaðili. Engin lögbundin endurskoðun á hverju tilviki. Við þurfum að nefna hlutina við nafn. Þegar stjórnmálamenn tala um að við þurfum að stjórna flóttafólki, á sama tíma og umsóknir um alþjóðlega vernd hafa minnkað um meira en 50% á einu ári, þá er vandinn ekki fjöldi fólks. Vandinn er sýnileiki þess. Varðhaldsmiðstöð (sem ég kýs að kalla það) er lausn á vandamáli sem pólitíkin skapar: fólkið sem þarfnast hjálpar er ekki það fólk sem hún vill að kjósendur sjái eða ræði um. Svo við tökum það úr sjónsviðinu. Önnur höndin segir: innflytjendur eru hættulegir, halda þeim út eða henda þeim út. Hin höndin læsir þá inni þar sem við sjáum þá ekki án eftirlits, án fjölmiðlaaðgangs, með heimild til valdbeitingar á börn. Samkvæmt 9. gr. frumvarpsins skulu vistmenn fá „nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, þar á meðal vegna geðraskana og geðfötlunar“. Ein setning. Enginn sálfræðingur nefndur. Engar kröfur um sálfræðilega skimun við komu. Ekkert um meðferð fyrir þolendur pyndinga, nauðgunar eða stríðs. Ekkert um hverjir ákveða hvað telst „nauðsynlegt“ og samkvæmt hvaða viðmiðum. Ekkert um börn sérstaklega. Frumvarpið skilgreinir í 2. gr. einstaklinga í „sérstaklega viðkvæmri stöðu“ — þ.e. þolendur pyndinga, kynferðislegs ofbeldis, einstaklinga með geðraskanir, alvarlega veika, og viðurkennir þannig að þessir einstaklingar munu vera inni á stöðinni. Síðan gefur það þeim eina setningu um geðheilbrigðisþjónustu. Á móti þessu stendur III. kafli frumvarpsins, sem notar sjö greinar til að útfæra nákvæmlega hvenær og hvernig starfsfólk má beita líkamlegum þvingunum, gera líkamsleit, leggja hald á muni og setja vistmann í öryggisklefa, allt með skýrum skilyrðum, ferlum og tímarömmum. Ríkið veit nákvæmlega hvernig það mun gæsla þá sem það fangar. Um það hvernig það mun hlúa að þeim segir það nánast ekkert. Eina spurningin sem eftir er: Viljum við að svona stofnun sé til í okkar nafni? Höfundur er leikskólastjóri og fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nichole Leigh Mosty Brottfararstöð fyrir útlendinga Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar