Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Lovísa Arnardóttir skrifar 9. júní 2026 07:17 Einbeittir drengir í golfi. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð suðaustlægri eða breytileg átt, fimm til 13 metrum á sekúndu, en hægari suðvestantil. Víða rigning með köflum eða skúrir, en úrkomulítið norðaustanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að þónokkrar lægðir í kringum landið stýri veðrinu næstu daga og valdi úrkomu í flestum landshlutum. Smálægð sé nú suðvestur af landinu sem grynnist hægt og valdi fremur hægum austlægum eða breytilegum áttum og skúrum víða á landinu í dag. Þá segir veðurfræðingur að seint í nótt og á morgun verði lægðamiðjan stödd suður af landinu og valdi skúrum um landið sunnan- og vestanvert. Önnur lægð nálgist okkur þá úr austri og valdi strekkingi þar með rigningu síðdegis norðaustanlands. Hiti verður á bilinu tíu til 18 gráður samkvæmt veðurfræðingi og hlýjast vestanlands en vegna þoku eða súldar með norður- og austurströndinni verður þó heldur svalara þar næstu daga. Væta og vindur Samkvæmt spá verður vindur austlægari á morgun og dálitlar skúrir, einkum sunnan- og vestanlands, en bætir í vind norðaustanlands síðdegis með rigningu. Hiti verður þá á bilinu átta til fimmtán 15 stig. Á fimmtudag og fram að helgi er svo útlit fyrir fremur hægbreytilegar áttir og dálitla vætu hér og þar, einkum sunnanlands. Á vef Vegagerðar kemur fram að vinna við vegaframkvæmdir eru víða um land og eru vegfarendur beðnir að sína aðgát og virða merkingar á vinnusvæðum. Nánar á vef Vegagerðar og veður á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en heldur hvassara norðvestanlands og á Austurlandi síðdegis. Skúrir um landið sunnan- og vestanvert, en rigning eða súld á Austur- og síðar Norðurlandi eftir hádegi. Hiti 7 til 15 stig, svalast við norðaustur- og austurströndina. Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10. Bjart að mestu, en skýjað norðaustanlands og líkur á dálítillri rigningu eða súld þar, einkum síðdegis. Hiti 7 til 12 stig, en að 18 stigum vestanlands. Á föstudag: Norðaustan 5-13 og víða súld eða dálítil rigning með köflum. Hiti 7 til 16 stig. Á laugardag: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Bjart að mestu, en stöku skúrir sunnan heiða. Hiti 11 til 19 stig, en þokuloft og heldur svalara við norður- og austurströndina. Á sunnudag: Breytileg átt og dálitlar skúrir vestanlands, annars þurrt að mestu. Hlýnar norðaustanlands. Á mánudag: Útlit fyrir austlæg eða breytileg átt og milt veður, en dálitla vætu síðdegis.
Veður Færð á vegum Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira