Ísland mætir heimsmeisturum með nokkurra klukkutíma millibili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2026 07:02 Hin spænska Aitana Bonmati með heimsbikarinn sem Spánn vann 2023 og hinn argentínski Lionel Messi með heimsbikarinn sem Argentína vann 2022. Getty/Maddie Meyer/ Julian Finney 9. júní 2026 er merkilegur dagur fyrir íslensku A-landsliðin í fótbolta því þau verða bæði í eldlínunni í dag og eru bæði að fara að spila við ríkjandi heimsmeistara.
Það er vissulega mun meira undir hjá stelpunum okkar í kvöld en hjá strákunum okkar. Kvennalandsliðið tekur á móti Spáni á Laugardalsvelli í lokaumferð riðilsins í undankeppni HM 2027. Íslenska landsliðið er búið að tryggja sér þriðja sætið en Spánn verður að vinna leikinn til að tryggja sig beint inn á HM. Taki íslensku stelpurnar stig af spænska landsliðinu þá komast ensku stelpurnar beint á HM í Brasilíu en spænska liðið fer í umspilið. Spánn er ríkjandi heimsmeistari eftir 1-0 sigur á Englandi í úrslitaleiknum 20. ágúst 2023 en leikurinn fór fram í Sydney í Ástralíu. Karlalandsliðið mætir síðan Argentínu seinna um kvöldið, um nótt að íslenskum tíma, en leikurinn fer fram í Auburn í Alabama-fylki í Bandaríkjunum. Þetta er síðasti leikur argentínska landsliðsins áður en titilvörn þess á HM hefst með leik á móti Alsír 16. júní. Lionel Messi spilaði ekki í sigrinum á Hondúras fyrir þremur dögum síðan en gæti komið við sögu í kvöld þar sem hann er búinn að ná sér af meiðslunum. Argentína er ríkjandi heimsmeistari eftir sigur á Frakklandi í vítakeppni í úrslitaleiknum 18. desember 2022 en leikurinn fór fram í Katar.
Landslið karla í fótbolta Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Sjá meira