Golf

Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um

Andri Broddason skrifar
Nelly Korda nær loksins að fagna sigri á Opna bandaríska mótinu á LPGA-túrnum
Nelly Korda nær loksins að fagna sigri á Opna bandaríska mótinu á LPGA-túrnum Sean M. Haffey/Getty Images

Nelly Korda náði loksins að sigra Opna bandaríska mótið á LPGA-túrnum. Þetta er fjórði sigur hennar á risamóti auk þess sem hún hefur unnið gull á Ólympíuleikunum.

Eftir að hafa spilað í fyrsta skipti á Opna bandaríska mótinu aðeins þrettán ára gömul hefur það verið mótið sem Korda hefur mest viljað vinna á ferlinum. Þrátt fyrir að hafa verið efst á heimslistanum hefur þetta mót reynst henni erfitt.

Hún endaði í öðru sæti mótsins og var farinn að halda að hún gæti ekki unnið þetta mót.

Fyrsti hringurinn hennar á mótinu byrjaði ekki vel og eftir hann stóð hún í 52. sæti mótsins. Eftir hringinn fór Nelly Korda á æfingasvæðið og vildi laga það sem var að spilinu hennar. Þar fann hún lausn á vandamálunum sínum því næstu tveir hringir hjá henni voru frábærir.

Hún var jöfn Sei-Young Kim á toppnum fyrir lokahringinn eftir að hafa fengið þrjá fugla í röð á síðustu þrem holunum á laugardeginum. Korda átti ekki frábæran hring á lokadeginum en stutta spilið hennar var frábært sem tryggði henni að lokum sigurinn.

Í verðlaunaafhendingunni fagnaði fjölskylda Korda mikið þar sem þau vissu hvað þetta mót var þýðingarmikið fyrir hana. Korda er nú búin að vinna bæði risamótin sem eru búin á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×