Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. júní 2026 12:43 Skotar hættu við að spila æfingaleik gegn Norðmönnum. Adam Hunger/Getty Images Skotland og Noregur áttu að mætast í æfingaleik fyrir luktum dyrum á mánudag en ekkert verður af því.
Bæði lið eru að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir HM og þetta átti að verða síðasti leikurinn sem þau spiluðu áður en stórmótið hefst. Skotland sendi Noregi tilkynningu seint í gærkvöld og lét vita að leikurinn yrði ekki spilaður. „Skotland þurfti því miður að falla frá fyrri áformum um æfingaleik, vegna meiðsla,“ staðfesti fjölmiðlafulltrúi norska knattspyrnusambandsins við NRK. Ekki er vitað um hvaða meiðsli ræðir. Skotland vann 4-0 sigur gegn Bólívíu á föstudag. Þjálfarinn Steve Clarke sagði þá gleðitíðindi að enginn hefði meiðst, eftir að hafa misst Billy Gilmour í slæm meiðsli í leiknum áður gegn Curacao. Noregur mun hins vegar spila opinn æfingaleik gegn Marokkó í kvöld, engin breyting hefur orðið þar á. Landsliðsþjálfari Noregs, Stale Solbakken, segist nálgast þann leik öðruvísi núna. „Það er illa geymt leyndarmál að við áttum skipulagðan lokaðan æfingaleik gegn Skotlandi, sem verður ekki spilaður... Hugmyndin með því að spila gegn Skotlandi var að gefa leikmönnum sem spiluðu lítið gegn Marokkó fleiri mínútur... Vegna þess að leiknum gegn Skotlandi var aflýst mun ég gera fleiri breytingar á liðinu gegn Marokkó. Það er mikilvægt að menn fái mínútur áður en mótið hefst,“ sagði Solbakken.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Fleiri fréttir Daníel Guðjohnsen fékk tækifæri eftir mikla óvissu Elche - Real Sociedad | Orri í eldlínunni Lið Elíasar bjargaði stigi Þróttur - Breiðablik | Endurheimta Blikar toppsætið? Stjarnan - Víkingur R. | Bæði lið þurfa á stigunum að halda Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ Sjá meira