Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 6. júní 2026 13:00 Gunnar Guðmundsson er lungnalæknir á Landspítalanum. Vísir/Samsett Heilsu krónprinsessu Noregs hefur hrakað verulega undanfarna mánuði vegna lungnasjúkdóms og í gær var greint frá því að hún væri á biðlista fyrir ígrætt lunga. Lungnalæknir segir þó ekki hlaupið að því að fá grætt í sig lunga.
Mette-Marit krónprinsessa hefur verið mikið í fréttum síðustu misseri og ekki eru þær flestar jákvæðar. Samskipti hennar og barnaníðingsins Jeffrey Epstein vöktu mikla hneykslun í vetur og sömuleiðis réttarhöldin yfir syni hennar Marius Höiby sem er ákærður fyrir fjölda ofbeldis- og kynferðisbrota. Þegar fréttaflutningurinn stóð sem hæst fór svo heilsan að gefa sig. Mette-Marit greindist með svokallaða lungnatrefjun og hefur heilsu hennar hrakað verulega undanfarna mánuði. Lungnatrefjun er sjaldgæfur sjúkdómur og nafnið er sömuleiðis ekki mjög gegnsætt. Teppi súrefnisflæðið Gunnar Guðmundsson lungnalæknir skýrir það þannig út að trefjunin vísi til þess að bandvefur myndist í lungum sem kemur á milli lungnablöðru og háræðar og teppir þannig súrefnisflæðið. Gunnar getur auðvitað ekkert sagt um tilfelli Mette-Maritar en segir sjaldgæft að annars hraustar fimmtugar konur fái sjúkdóminn. Algengastur sé hann hjá karlmönnum yfir sextugu og sérstaklega hjá þeim sem hafa reykt. Ekki sé þó óalgengt að engin skýring liggi beinast við. „Því miður er algengt að þetta greinist seint. Stundum vantar þekkingu til að greina þetta rétt þannig að það er búið að reyna að meðhöndla ýmislegt annað áður en kemur að þessu. Þannig að oft og tíðum eru komnar miklar skemmdir í lungun þegar þetta uppgötvast,“ segir Gunnar. Lyf hægi á en stöðvi ekki trefjamyndun Gunnar segir tvö lyf hægja á þróun sjúkdómsins og að von sé á nýju lyfi á næsta ári. Sé sjúkdómurinn kominn á það stig að sjúklingi er ekki mikið lengra lífs auðið kemur lungnaígræðsla til greina. Norskir miðlar greindu einmitt frá því í dag að Mette-Marit væri komin á biðlista fyrir slíka aðgerð. Að fá grætt í sig lunga er þó ekki gert af léttúð. „Það hentar ekki fyrir marga. Í raun mjög fáa því maður þarf að vera hraustur og ungur til að fara í svona aðgerð og láta það ganga eftir. Það eru ekki nema lítill hluti þeirra sem er með svona sjúkdóma sem í fyrsta lagi þarfnast svona lungnaígræðslu og í öðru lagi er í ástandi til að geta farið í hana. Það er ekki verið að lækna neitt heldur bara skipta um nafn á sjúkdómnum. Þú ferð frá því að vera með lungnatrefjun yfir í að vera með ígrætt lunga. Það í sjálfu sér er sjúkdómsástand,“ segir Gunnar Guðmundsson lungnalæknir.
Noregur Kóngafólk Heilsa Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira