Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Sindri Sverrisson skrifar 5. júní 2026 13:59 Freyr Alexandersson náði eftirtektarverðum árangri með Brann en gekk ekki nógu vel á þessari leiktíð. Getty/Alessandro Sabattini Á meðal þeirra sem urðu steinhissa á mánudaginn, þegar Freyr Alexandersson var rekinn frá Brann, er norski landsliðsmaðurinn David Møller Wolfe sem mættur er á HM í Bandaríkjunum.
Wolfe lék með Wolves í ensku úrvalsdeildinni í vetur en er uppalinn í Bergen og lék með Brann árin 2021-23. Hann fylgist því náið með Brann, jafnvel núna þegar fyrsta stórmót Noregs frá árinu 2000 er að hefjast. Spurður út í brotthvarf Freys sagði Wolfe við Nettavisen: „Ég varð mjög hissa eins og margir aðrir. Þetta kom flestum líklega á óvart.“ Brann hefur tapað síðustu þremur leikjum í norsku deildinni og er í ellefta sæti, tveimur stigum frá fallsvæðinu. Freyr tók við starfinu hjá Brann í janúar 2025 og kom liðinu í Evrópudeildina á sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn. Þar náði Brann góðum árangri en datt út í umspilinu. Liðið náði líka langt í norska bikarnum en tapaði síðan úrslitaleiknum gegn Bodo/Glimt í vor, eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Sýnir hve miskunnarlaus fótboltinn getur verið „Tímabilið í fyrra var auðvitað mjög gott. Í ár hefur þetta ekki byrjað eins og Bergenbúar og Brann-menn sjálfir höfðu vonast eftir og búist við. Svo áttu þeir mjög góðan bikarúrslitaleik. Hefðu þeir unnið hann, þá hefði allt örugglega litið öðruvísi út núna. Þannig að það segir svolítið um hversu miskunnarlaus afreksfótbolti getur verið og hversu mikilvægt það er að hafa heppnina með sér,“ sagði Wolfe. Nú er hlé á norsku úrvalsdeildinni vegna HM og næsti leikur Brann ekki fyrr en 12. júlí. „Tímasetningin gæti verið góð, að gera þetta rétt fyrir langt sumarhlé og allt það. Nú hef ég ekki verið í búningsklefanum og veit ekki hvernig hlutirnir hafa verið þar, en fyrir okkur sem stöndum fyrir utan þá kom það verulega á óvart að félagið skyldi taka þessa ákvörðun,“ sagði Wolfe.
Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Sjá meira