„Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Smári Jökull Jónsson skrifar 5. júní 2026 06:44 Selenskí á blaðamannafundi í vikunni. Vísir/Getty Vólódímir Selenskí, forseti Úkraínu, hefur í opnu bréfi til Vladimír Putín Rússlandsforseta kallað eftir fundi á milli leiðtoganna í von um að koma á friði og binda enda á stríðið.
Í bréfinu segir Selenskí að ekki sé hægt að bíða eftir því að stríðið í Úkraínu verði á ný í brennidepli hjá Bandaríkjamönnum nú þegar öll athygli ráðamanna í Washington sé á miðausturlöndum og átökum þar. Friður náist aðeins með beinum samskiptum á illi Úkraínu og Rússlands. Selenskí leggur til að fundur hans og Pútín verði haldinn í hlutlausu ríki og nefnir Sviss eða Tyrkland í því samhengi. Þá kallar hann eftir vopnahléi á meðan viðræður fara fram, kröfu sem Pútín hafnaði í gær. Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, sagði að það væri „frábært“ ef leiðtogarnir tveir myndu hittast. Kreml upplýsir Pútín Talsmenn Kreml staðfestu að bréf Selenskí hefði borist og að Pútín forseti yrði upplýstur um efni þess. Þá ítrekuðu þeir jafnframt fyrri afstöðu sína um að Selenskí væri velkominn á fund með Pútín í Moskvu en Selenskí hefur hafnað slíku tilboði áður. Í samtali við erlenda blaðamenn í Sankti Pétursborg, áður en efni bréfsins lá fyrir, sagðist Pútín tilbúinn að ná samkomulagi við Úkraínu en þá þyrfti til málamiðlanir. Hann lagði til að Evrópusambandið reyndi að sannfæra Úkraínu um að afsala sér yfirráðum yfir svæðum sem Rússar hafa að mestu hernumið og hætta við áform um inngöngu í NATO. Úkraína hefur hins vegar útilokað að afhenda Rússum landsvæði og varar við því að slíkt myndi aðeins hvetja Moskvu til frekari árása, líkt og gerst hafi eftir innlimun Krímskaga árið 2014. Þá efaðist Putin jafnframt um lögmæti Zelenskys sem forseta, líkt og hann hefur margoft gert áður, og sagði það spurningu fyrir lögfræðinga þar sem forsetakosningar hefðu ekki farið fram eftir að kjörtímabili hans lauk í maí 2024. Kosningum hefur verið frestað í Úkraínu eftir að herlög tóku gildi í kjölfar innrásar Rússa. Raunverulegt tilboð um að binda endi á stríðið Í bréfinu skrifar Selenskí einnig að almenningur í Rússlandi sé orðinn þreyttir á árásum Úkraínumanna, skorti á eldsneyti og háu vöruverði sem og langvarandi stríði. Jafnframt að eftir tuttugu og sex ár sé aldurinn farinn að segja til sín hjá Pútín. „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði. Það er það sem krafist er af þér núna,“ skrifar Selenskí og endurtekur að Úkraína bjóði upp á að binda enda á stríðið með beinum samskiptum þeirra á milli. Utanríkisráðherra Úkraínu, Andriy Sybiha, segir bréfið raunverulegt tilboð um að binda enda á stríðið. „Við búumst við alvöru svari við þessu tilboði. Það er kominn tími á að enda stríðið, það er kominn tími til að velja frið,“ segir Sybiha.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína Hernaður Vladimír Pútín Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira