Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 4. júní 2026 19:31 Í meira en hundrað ár hefur íslenska krónan verið viðskiptamyntin í gegnum brim og boðaföll íslenska efnahagslífsins. Sífelldar gengisfellingar, verðbólga og óvissa sem bitnar mjög illa á almenningi. Í þessari grein vil ég að við sjáum fyrir okkur báta og skip sem sigla um margvíslegum veðrum heimsviðskiptanna. Það má líkja krónunni við smábát í þessum ólgusjó. Smábátur getur verið ágætur þegar veðrið er gott og sjórinn lygn. En þegar komið er út á rúmsjó alþjóðahagkerfisins reynir á hann. Hann kastast nær stjórnlaust um í öldurótinu og tekur á sig brotsjói sem hann stenst tæplega og getur ekki sótt þau mið þar sem stærstu tækifærin eru. Þegar olíuverð hækkar, fjármálamarkaðir sveiflast eða alþjóðleg áföll dynja yfir finnur almenningur á Íslandi strax fyrir því. Vextir hækka, verðbólga eykst og kaupmáttur rýrnar. Borðstokkar styrktir Í áratugi hefur fjármálakerfið reynt að styrkja smábátinn. Vísitölutryggingin er eitt dæmið. Hún var hugsuð til að verja fjármálakerfið gegn verðbólgu og óstöðugleika. En almenningur á Íslandi lendir í brimskaflinum. Við vitum ekki hversu greiðslubyrðin verður há í næsta mánuði. Almenningur gerir heiðarlega greiðsluáætlun en í ólgusjó verðbólgu erum við komin með allt aðrar greiðslur af lánum en við lögðum upp með. Ætlar almenningur og litlu fyrirtækin að láta þetta yfir sig ganga áfram? Hverjir hafa fengið að koma sér yfir í stærra og öruggara skip? Hér er mesta meinsemd íslensks samfélags, þar sem fáir útvaldir fá að nýta traustari gjaldmiðla á meðan almenningur er skilinn eftir. Er hér ekki gott dæmi um að sérhagsmunir séu settir ofar almannahagsmunum? Þessi fyrirtæki eru komin um borð í stærra skip. Almenningur er hins vegar áfram í smábátnum. Af hverju Viðreisn? Ég gekk til liðs við Viðreisn vegna stefnu flokksins, ekki einstaklinga. Sú stefna byggir á þeirri einföldu hugsun að almannahagsmunir eigi alltaf að vega þyngra en sérhagsmunir. Að allt sé gert til að lýðræði virki og allir hafi sömu tækifæri. Að leikreglurnar séu sem jafnastar fyrir heimili, launafólk, lítil fyrirtæki og stór fyrirtæki. Gjaldmiðlamálið snýst að stórum hluta um þetta, hvort við ætlum áfram að búa við kerfi þar sem þeir stærstu geta varið sig gegn sveiflum krónunnar á meðan almenningur ber stærstan hluta áhættunnar. Hvað sögðu gömlu skipstjórarnir – hagspekingarnir? Það merkilega við nýju skýrsluna um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum er að niðurstöðurnar eru ekki nýjar eins og kemur skýrt fram í nýrri grein Þorsteins Pálssonar. Jóhannes Nordal, einn áhrifamesti seðlabankastjóri Íslands, taldi þegar árið 1991 að stöðugleiki fastari gengistenginga gæti vegið þyngra en möguleikinn á sífelldum gengisbreytingum. Guðmundur Magnússon, hagfræðingur og fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, benti árið 2001 á að gengisfelling fjölgaði ekki fiskunum í sjónum og breytti ekki raunverulegri verðmætasköpun. Jónas Haralz komst síðar að þeirri niðurstöðu að litlir sjálfstæðir gjaldmiðlar ættu sífellt erfiðara uppdráttar í heimi stærri myntsvæða. Nú hafa erlendir sérfræðingar komist að mjög svipaðri niðurstöðu. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri benti á 2022 að tásumyndir frá Tenerife væru merki um mikla einkaneyslu. Þá var hann í raun að lýsa því hvernig smæð gjaldmiðilsins gerir hagkerfið viðkvæmt fyrir sveiflum. Þegar þúsundir Íslendinga fara í sólina skiptir það meira máli fyrir lítinn smábát en stórt skip. Það er einmitt spurningin sem við þurfum að svara: Viljum við áfram sigla í smábátnum eða færa alla þjóðina um borð í stærra skip sem þolir betur öldugang alþjóðahagkerfisins? Ummæli Ásgeirs segja allt sem segja þarf um hversu krónan er veik í hinu opna hagkerfi sem Íslendingar vilja búa við. Efnahagsumhverfi Íslands hefur styrkst Fyrir hundrað árum byggði útflutningur í hagkerfinu nánast eingöngu á sjávarútvegi. Í dag höfum við öfluga ferðaþjónustu, tæknifyrirtæki, hugvit, nýsköpun og sérþekkingu sem selst um allan heim. Við höfum fleiri stoðir undir hagkerfinu en nokkru sinni fyrr. Við erum ekki að ræða þessa framtíðarsýn vegna þess að Ísland sé veikt. Við erum að ræða hana vegna þess að Ísland er sterkt og hefur mikla möguleika til að styrkja enn frekar samkeppnisstöðu sína. Er kominn tími á stærra skip? Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki um að taka upp evru daginn eftir. Hún snýst um hvort við viljum halda áfram að kanna þann möguleika. Hvort við viljum skoða af opnum hug hvernig við tryggjum best hagsmuni komandi kynslóða. Nú er spurningin hvort „smábáturinn“ sé enn besta farartækið fyrir þjóð sem hefur aldrei verið sterkari, menntaðri og betur tengd umheiminum. Viljum við að öll þjóðin fái að fara um borð í stærra og traustara skip? Skip sem þolir betur ölduganginn. Skip sem kemst á fleiri mið. Skip sem gefur almenningi sömu tækifæri og þeim fáu „útvöldu“ sem þegar hafa fundið sér leið út úr smábátnum. Höfundur er viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar