Innlent

Þota föst á Tenerife vegna á­reksturs

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Þotan er væntanleg til landsins á morgun.
Þotan er væntanleg til landsins á morgun. Vísir/Vilhelm

Farþegaþota Icelandair sem átti að fljúga til landsins seint í gærkvöldi hefur verið kyrrsett á Tenerife eftir að ökutæki á flugvellinum þar úti var ekið á vængenda hennar.

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir varahlut væntanlegan í dag og þotuna væntanlega til landsins á morgun. 

Farþegarnir komi heim með öðru flugi í kvöld.

Flugi til Munchen sem áætlað var að færi í loftið á áttunda tímanum í morgun en var aflýst vegna hnjasksins á vélinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×